Nýtt líf eftir að 500 millilítra sílíkonpúðar voru fjarlægðir
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arn­björns­dóttir ljós­móðir gekkst undir ristil­nám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púð­ana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veik­indi frá árinu 2008. Nú hafa púð­arnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný seg­ist hafa öðl­ast nýtt líf.
Lá í dái í fjórar vikur
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauð­ar­heil­kenni og féll í dá í fjórar vikur síð­asta sumar. Und­an­fari veik­ind­anna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veik­inda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjar­lægja þá. Sjúkra­trygg­ingar Íslands nið­ur­greiða ekki aðgerð­ina. Hún kostar mörg hund­ruð þús­und.
„Við fengum ekki að velja hvar við fæddumst“
Viðtal

„Við fengum ekki að velja hvar við fædd­umst“

Aðgerða­sinn­arnir í Pussy Riot eru í sjálf­skip­aðri útlegð frá Rúss­landi en þar bíður þeirra fátt annað en fang­els­is­vist. Þær segja stöð­una í heima­land­inu hræði­lega og fari versn­andi. „Þetta er mitt heim­ili,“ segir Maria Alyok­hina um Rússland, sem hún býst við að snúa aftur til einn dag­inn. Hópurinn ræðir aktí­vis­mann, aðstæð­urnar heima fyrir sem og Pútín og stríðið í Úkraínu sem þær berj­ast gegn.
Svarið við tilgangi lífsins felst í spurningunum
Viðtal

Svarið við til­gangi lífs­ins felst í spurn­ing­unum

Vin­sæl­asti áfangi í sögu Yale-háskóla verður aðgengi­legur nemum við Háskóla Íslands þarnæsta haust, ef allt gengur eftir. Um er að ræða eins konar lífs­leikni fyrir háskóla­nema sem byggir á nálgun sem nefn­ist Life Worth Living. Pró­fess­or­arnir og prest­arnir á bak við nálg­un­ina segja öll líf þess virði að lifa en svarið við til­gangi lífs­ins felist í að spyrja nógu margra spurn­inga.
„Mér leið eins og frelsið hefði verið tekið frá mér“
Viðtal

„Mér leið eins og frelsið hefði verið tekið frá mér“

Í heilt ár gat Þórunn Salka Pét­urs­dóttir ekki sett á sig bláan augn­blý­ant. Hann minnti hana um of á kvöldið sem hún varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Á föstu­dag sendi hún frá sér lag um reynsl­una. Myndin sem fylgir lag­inu sýnir konu sem hefur end­ur­heimt frelsið sitt. Konu með bláan augn­blý­ant. Það er Þórunn sjálf en hún flutti lagið í dag á sam­stöðu­fundi Druslu­göng­unnar.
Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsökunar“
ViðtalSalan á Íslandsbanka

Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsök­unar“

Nýr banka­stjóri Íslands­banka segir bank­ann hafa gert mis­tök með því að girða ekki fyrir að starfs­menn bank­ans gætu sjálfir keypt í honum. Jón Guðni Ómarsson segir bank­ann sömu­leiðis hafa gert mis­tök með við­brögðum sínum eftir að sátt hans við Fjár­mála­eft­ir­litið varð opin­ber, í stað þess að sýna auð­mýkt hafi bank­inn farið í vörn. „Ég skil hana mjög vel,“ segir Jón Guðni aðspurður um hvort hann skilji reiði fólks í garð bank­ans.
Vill að unga fólkið taki við keflinu í hamfarafréttunum
Allt af létta

Vill að unga fólkið taki við kefl­inu í ham­fara­f­rétt­unum

Fréttir af eld­gos­inu sem hófst á mánu­dag hafa verið fyr­ir­ferð­ar­miklar í vik­unni. Fyrir Stöð 2 stendur frétta­mað­ur­inn Kristján Már Unn­ars­son ham­fara­vakt­ina og birt­ist áhorf­endum, oftar en ekki íklæddur gulu vesti á vett­vangi, með nýj­ustu tíð­indi af hraun­flæði og gasmengun. Hann sagði Heim­ild­inni allt af létta um starf frétta­manns í eld­gosa­tíð.
Ísteka: Reynsluleysi dýralækna líklegasta skýringin
ViðtalBlóðmerahald

Ísteka: Reynslu­leysi dýra­lækna lík­leg­asta skýr­ingin

Íslenskir dýra­læknar hættu störfum hjá Ísteka eftir nei­kvæða umfjöllun um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þrír pólskir dýra­læknar, sem enga reynslu höfðu af blóð­töku úr fyl­fullum hryssum, voru ráðnir. Þeir fengu þjálfun hjá Ísteka en reynslu­leysi er að mati fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins lík­leg­asta orsök þess að átta hryssur drápust í tengslum við blóð­tök­una í fyrra.
Hjálpar samlöndum að komast inn í samfélagið á Austurlandi
Viðtal

Hjálpar sam­löndum að kom­ast inn í sam­fé­lagið á Aust­ur­landi

Iryna Boiko flutti til Íslands fyrir um tólf árum síðan frá Úkraínu og starfar sem nagla­fræð­ingur á Egils­stöðum. Hún hefur aldrei sótt íslensku­nám­skeið en stýrir nú slíkum sjálf, fyrir sam­landa sína sem hafa flúið stríðið í Úkraínu til Aust­ur­lands, aðal­lega karl­menn sem dvelja í gömlu heima­vist­ar­húsi á Eiðum. Heim­ildin ræddi við Irynu á Egils­stöðum og kíkti í heim­sókn til Eiða.
Dreymir um að segja ósagðar sögur flóttafólks
Viðtal

Dreymir um að segja ósagðar sögur flótta­fólks

Sayed Khanog­hli hefur verið á flótta meiri­hluta ævi sinnar. Hann yfir­gaf Afganistan 14 ára og hélt út í óviss­una. Hann kom til Íslands fyrir fjórum árum og útskrif­að­ist í vor af kvik­mynda­gerð­ar­braut Borg­ar­holts­skóla, nokkuð sem hann taldi ómögu­legt fyrir nokkrum árum. Draum­ur­inn er að verða leik­stjóri og segja sög­una sem aldrei er sögð „af fólki sem eru flótta­menn, fólki sem er eins og ég, að byrja nýtt líf“.
Ungri konu vísað úr landi vegna niðurstöðu tanngreiningar: „Ég er engin, ég er ekki til“
Viðtal

Ungri konu vísað úr landi vegna nið­ur­stöðu tann­grein­ingar: „Ég er engin, ég er ekki til“

Útlend­inga­stofnun hefur synjað ungri konu um dval­ar­leyfi og vernd eftir fimm ára dvöl á Íslandi vegna nið­ur­stöðu tann­grein­ingar, þrátt fyrir að konan sýni fram á lög­mæt skil­ríki með réttu fæð­ing­ar­ári. Lögmaður kon­unnar segir að um gróft mann­rétt­inda­brot sé að ræða. Útlend­inga­stofnun hefur sent henni brott­vís­un­ar­bréf án mögu­leika á frestun rétt­ar­á­hrifa.
Verð ég að hætta að labba?
Viðtal

Verð ég að hætta að labba?

Guðbjörg Bjarna­dóttir hafði reykt í ára­tugi þegar hún ákvað að venda sínu kvæði í kross og fór hún að fitna í kjöl­farið. Hún fór að ganga með göngu­hópi og smátt og smátt fékk hún meira þol og fór í lengri göngur. Hún greind­ist síðar með krabba­mein og segir að það fyrsta sem hún hafi spurt lækn­inn um hafi verið hvort hún þyrfti að hætta að ganga. Hún fór í létt­ari göngur meðan á með­ferð­inni stóð og byrj­aði svo aftur í göngu­hópnum; byrj­aði smátt og er nú farin að fara í lengri göngur þótt þolið sé ekki orðið eins og það var.

Mest lesið undanfarið ár