Líf sem er sam­boðið mennsk­unni Ryan McAnnally-Linz og Matthew Croasmun, guð­fræð­ingar og pró­fess­orar við Yale-háskóla, kenna vin­sælasta áfang­ann í sögu skól­ans þar sem leit­ast er eftir því að svara spurn­ingum um til­gang lífs­ins og hvað það er sem gerir líf okkar þess virði að lifa því. Mynd: Heiða Helgadóttir

Svarið við tilgangi lífsins felst í spurningunum

Vin­sæl­asti áfangi í sögu Yale-háskóla verður aðgengi­legur nemum við Háskóla Íslands þarnæsta haust, ef allt gengur eftir. Um er að ræða eins konar lífs­leikni fyrir háskóla­nema sem byggir á nálgun sem nefn­ist Life Worth Living. Pró­fess­or­arnir og prest­arnir á bak við nálg­un­ina segja öll líf þess virði að lifa en svarið við til­gangi lífs­ins felist í að spyrja nógu margra spurn­inga.

Hvernig er líf sem er þess virði að lifa? Þessari heim­speki­legu spurn­ingu hafa háskóla­pró­fess­or­arnir Matthew Croasmun og Ryan McAnnally-Linz velt fyrir sér stóran hluta af líf­inu og síð­ustu níu ár hafa þeir leitað svara með nem­endum við Yale-háskóla. Áfanginn, Life Worth Living, er opinn öllum grunn­nemum við háskól­ann og er sá vin­sæl­asti í rúm­lega 300 ára sögu skól­ans. Í vor gáfu þeir út sam­nefnda bók sem byggir á áfang­anum og er nokk­urs konar leið­ar­vísir að því sem mestu máli skiptir í líf­inu. 

En hvert er svarið við stóru spurn­ingu lífs­ins? Hvernig er líf sem er þess virði að lifa? Blaða­maður sett­ist niður með Ryan og Matthew fyrir skömmu þegar þeir voru staddir á Íslandi til að kenna útgáfu af áfang­anum á nám­skeiði við Háskóla Íslands fyrir fag­fólk og kenn­ara sem hafa áhuga á að kenna Life Worth Living-áfang­ann í sínum háskólum en til stendur að inn­leiða áfang­ann …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár