Hjálpar samlöndum að komast inn í samfélagið á Austurlandi

Iryna Boiko flutti til Íslands fyrir um tólf árum síðan frá Úkraínu og starfar sem nagla­fræð­ingur á Egils­stöðum. Hún hefur aldrei sótt íslensku­nám­skeið en stýrir nú slíkum sjálf, fyrir sam­landa sína sem hafa flúið stríðið í Úkraínu til Aust­ur­lands, aðal­lega karl­menn sem dvelja í gömlu heima­vist­ar­húsi á Eiðum. Heim­ildin ræddi við Irynu á Egils­stöðum og kíkti í heim­sókn til Eiða.

Hjálpar samlöndum að komast inn í samfélagið á Austurlandi
Á Egils­stöðum Þrátt fyrir að hafa sjálf aldrei farið á íslensku­nám­skeið stýrir Iryna Boiko þeim nú sjálf. Tungu­málið hefur hún lært af kon­unum sem koma til hennar í neglur. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Iryna Boiko flutti til Íslands frá Úkraínu árið 2011 og hefur brátt verið tólf ár hér á landi, ásamt eig­in­manni sínum. Hún bjó um sex ára skeið á Borg­ar­firði eystra en hefur nú verið á Egils­stöðum í hart­nær sex ár. Í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu tók fjöl­skylda hennar á móti alls sjö manns úr hópi nán­ustu fjöl­skyldu og vina. 

„Það var mamma mín, mág­kona með son, vin­kona mín með son og frænka manns­ins míns og svo seinna kom tengda­mamma mín,“ segir Iryna í sam­tali við Heim­ild­ina, á kaffi­húsi á Egils­stöðum.

Hún segir fjöl­skyld­una hafa spjarað sig vel í sam­fé­lag­inu fyrir austan frá því að þau komu. Mágkona hennar hafi fengið vinnu og hús­næði á Borg­ar­firði eystra, þar sem strák­ur­inn hennar gangi í skóla. Mamma hennar, sem starf­aði sem kjöt­iðn­að­ar­kona í Úkraínu, er komin með vinnu í býti­búri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins á Egils­stöðum, vin­kona hennar farin að vinna á snyrti­stofu í bænum og frænka eig­in­manns hennar stendur nú afgreiðslu­vaktir í apó­teki Lyfju í bænum. 

Í samfélagsfræðslu og íslenskukennslu

Fyrir utan að vera fjöl­skyldu sinni innan handar við aðlögun að sam­fé­lag­inu hefur Iryna einnig komið að fræðslu og íslensku­kennslu fyrir þann hóp Úkra­ínu­manna, aðal­lega karl­manna, sem flust hafa í Múlaþing í kjöl­far þess að nýir eig­endur fast­eign­anna á Eiðum buðu fram heima­vist­ar­hús gamla Alþýðu­skól­ans undir flótta­fólk frá Úkraínu. Um 20 manna hópur kom þangað síð­asta haust.

Iryna segir að Aust­ur­brú, sem er sjálfs­eign­ar­stofnun sem kemur m.a. að byggða-, mennta- og atvinnu­málum á Aust­ur­landi, hafi haft sam­band við hana og beðið hana um að taka þátt í þess­ari sam­fé­lags­fræðslu og síðar íslensku­kennslu. Hún seg­ist hafa verið hik­andi við að taka að sér kennslu, enda sé hún ekki kenn­ari og hafi raunar aldrei farið á neitt íslensku­nám­skeið sjálf, heldur lært íslensku af kon­unum sem koma í neglur til hennar, en Iryna starfar sem nagla­fræð­ingur á Egils­stöðum.

„Ég fór aldrei á nám­skeið sjálf, ég lærði bara íslensku af kon­unum sem koma í neglur til mín. Ég er með góða kenn­ara.“
Iryna Boiko

Hún segir tungu­málið kannski vera það sem helst vefj­ist fyrir úkra­ínsku fólki, bæði börnum og full­orðnum, sem kemur til Íslands. „Þetta er erfitt því það eru svo fáir frá Úkraínu sem tala ensku,“ segir Iryna og minn­ist á að á Egils­stöðum hafi verið reglu­legir hitt­ingar á vegum Sóroptim­ista­klúbbs­ins sem úkra­ínsku kon­urnar í hennar nærum­hverfi hafi sótt. 

„Við vorum að mæta einu sinni í viku í Safna­húsið að prjóna saman, spjalla og fá okkur kaffi og te. Það voru margar íslenskar konur að koma og tungu­málið var aðal­vanda­málið. Ég var aðeins að túlka, en það er erfitt þegar það eru margir í einu,“ segir Iryna, en nefnir að prjóna­skap­ur­inn og þær alþjóð­legu aðferðir sem beitt er í honum hafi brotið niður tungu­málam­úr­inn að ein­hverju leyti.

Hún segir blaða­manni að í hennar íslensku­kennslu sé byrjað alveg frá grunni. Tímarnir séu þó krefj­andi fyrir nem­end­urna þar sem afar erfitt reyn­ist að brjóta úkra­ínskar tungur utan um sum íslensk orð, en á sama tíma sé verk­efnið skemmti­legt. „Maður er alltaf hlæj­andi,“ segir Iryna. 

Enginn að kvarta úti á Eiðum

Spurð út í það hvernig þeim nem­endum hennar sem dvelja eða dvalið hafa á Eiðum þyki aðbún­að­ur­inn og það að vera þar, segir hún að vissu­lega hafi komið til tals að Eiðar séu svo­lítið ein­angr­aður staður.

„En þetta er betra en ekk­ert. Það er erfitt að fá hús­næði, eins og alls staðar og kannski sér­stak­lega á Aust­ur­landi, en ég held að þeir séu flestir mjög ánægðir að vera þar. Það er búið að gera ýmis­legt fyrir þá, það er rúta þrisvar á dag og þeir sem eru að vinna hjá Alcoa hafa kost á að leigja bíl og sumir eru búnir að kaupa sér bíla. Ég heyri ekki neitt kvart, eng­inn er að kvarta. Auðvitað er það allt öðru­vísi að vera með svona sam­eig­in­legt eld­hús og bað­her­bergi, ekki allir sem eru að fíla það, en eins og ég segi, þetta er betra en ekk­ert,“ segir Iryna.

Nokkur hluti þeirra sem hafa komið til Eiða til dvalar hefur flutt í burtu síðan, en Iryna segir um 20 manns hafa komið í fyrsta holl­inu til Eiða. Af þeim hefur alla­vega helm­ing­ur­inn flust til Fjarða­byggðar, þar sem fólk hafi fengið atvinnu þar. „Ég held að átta manns hafi flutt á Reyð­ar­fjörð og tveir karlar hafi farið á Fáskrúðs­fjörð, en hinir séu úti á Eiðum,“ segir Iryna.

Hún segir Úkra­ínu­menn hafa verið rosa­lega heppna að kom­ast til Íslands, þó að inn­viðir hér hafi ekki verið til­búnir fyrir jafn­marga flótta­menn og komu. „Það var allt rosa­lega erfitt fyrst með leyfi, að fá kenni­tölu og svona,“ segir Iryna, sem stóð í stappi við Útlend­inga­stofnun fyrir þau mál. Hún segir að afgreiðsla mála þeirra sem voru úti á landi hafi gengið hægar en dæmi hafi verið um fyrir sunnan. 

„Fólk var búið að finna vinnu löngu áður en það fékk leyfi. Það tók alveg þrjá mán­uði að fá kenni­tölur og ég veit að fyrir sunnan var það stundum bara vika eða tíu virkir dagar. Fyrir þau sem voru nálægt var þjón­ustan betri,“ segir Iryna.

Lífið í Úkraínu strembið jafnvel fyrir stríð

Hún segir að hennar fólk sé ánægt á Íslandi, en mamma hennar til dæmis seg­ist ætla að fara heim þegar stríð­inu ljúki. „En það kemur í ljós, hvenær það verður búið,“ segir hún og bætir við að jafn­vel fyrir stríð hafi lífið verið erfitt í Úkraínu, vand­ræði verið með vinnu og margir atvinnu­lausir. „Og það verður örugg­lega enn erf­ið­ara seinna. Það er erfitt að segja til um hvernig morg­un­dag­ur­inn verður.“

Iryna segir að margir Úkra­ínu­menn sem starfi hér séu að safna fé og senda til fjöl­skyldu og vina sem eru í Úkraínu. Þær fjár­hæðir geti verið háar í úkra­ínsku sam­hengi. „Þetta er allt öðru­vísi líf í Úkraínu og allt öðru­vísi tekjur. Það er mis­jafnt hvar fólk er að vinna og hvað fólk er að gera. Eins og mamma, hún vann í kjöt­vinnslu, sem kjöt­iðn­að­ar­maður, og hún var að vinna níu tíma á dag fimm daga í viku og var að fá sirka 60 þús­und íslenskar krónur á mán­uði.“

Hún segir að líf barna­fólks í Úkraínu geti verið mjög strembið. Mikill kostn­aður fylgi til dæmis skóla­göngu, sem ekki sé til staðar hér. „Ég veit ekki hvernig þetta er í öðrum bæjum en á Egils­stöðum, en ég á stelpu sem er 11 ára og hún er í 5. bekk og ég kaupi ekki neitt, bara skóla­tösk­una. Hún á allt, fær allt í skól­anum bara. Allt sem þarf, blý­anta og liti og annað, en í Úkraínu þarf fólk að kaupa allt fyrir sitt eigið barn. Og skóla­bún­inga fyrir börnin einu sinni á ári. Það kostar allt!“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár