Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Matti“ sendur úr landi þó vegabréfið segi hann barn

Mahdi Rahimi var 13 ára þegar hann lagði af stað frá Afganistan eftir að faðir hans var myrtur. Fjórum árum síðar var hann kom­inn til Íslands, aleinn. Hann lærði íslensku í Flens­borg og fór á fót­bolta­æf­ingar hjá Haukum. Samkvæmt grísku vega­bréfi er hann enn barn. Útlend­inga­stofnun segir hann full­orð­inn. Nú hefur hún vísað honum úr landi.

„Ég heiti Mahdi, ég er frá Afganistan,“ segir Mahdi Rahimi með nán­ast óað­finn­an­legum íslenskum fram­burði við blaða­mann og brosir feimn­is­lega. Snædís Bald­urs­dóttir, kenn­ari við Flens­borg sem kallar Mahdi Matta, kenndi honum orðin sem nú finna sér svo far­sæla leið út í and­rúms­loftið. 

En þau verða honum ekki til mik­ils gagns á næst­unni. Honum hefur verið vísað úr landi, jafn­vel þó að hann sé – sam­kvæmt grísku vega­bréfi sem hann sýndi blaða­manni – enn 17 ára gam­all og því fylgd­ar­laust barn. 

Útlend­inga­stofnun tekur ekki mark á vega­bréfi Mahdis. Hún taldi vafa á því að Mahdi væri barn og sendi hann því í ald­urs­grein­ingu á tönnum. Var nið­ur­staða grein­ing­ar­innar sú að hann væri 18 ára.

Faðirinn myrtur í Afganistan

Ferðalag Mahdis hófst árið 2018. Þá var hann þrettán ára gam­all. Ekki löngu áður hafði faðir hans verið myrtur í Afganistan.

„Ég veit ekki af hverju,“ …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár