Mynd: Sviðsett / Shutterstock

Ungri konu vísað úr landi vegna niðurstöðu tanngreiningar: „Ég er engin, ég er ekki til“

Útlend­inga­stofnun hefur synjað ungri konu um dval­ar­leyfi og vernd eftir fimm ára dvöl á Íslandi vegna nið­ur­stöðu tann­grein­ingar, þrátt fyrir að konan sýni fram á lög­mæt skil­ríki með réttu fæð­ing­ar­ári. Lögmaður kon­unnar segir að um gróft mann­rétt­inda­brot sé að ræða. Útlend­inga­stofnun hefur sent henni brott­vís­un­ar­bréf án mögu­leika á frestun rétt­ar­á­hrifa.

„Ísland er heim­ilið mitt, hér þekki ég allt og skil tungu­málið,“ segir ung kona sem flutt­ist til lands­ins 15 ára gömul og hefur búið hér síð­ustu fimm ár án kenni­tölu. Hún biður Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að skoða hvers vegna verið er að vísa henni úr landi og telur afstöðu Útlend­inga­stofn­unar í máli hennar ekki stand­ast rök. 

Hafði ekkert að fela

Fyrst flúði konan frá heima­landi sínu 10 ára gömul. Hún fór til Sví­þjóðar og sótti þar um alþjóð­lega vernd sem fylgd­ar­laust barn. Á meðan málið var í far­vegi þar ákvað hún að koma frekar til Íslands því hún taldi sig eiga mögu­leika á betra lífi hér. „Ég lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli í ágúst 2018 og sýndi skil­ríkin mín. Það gekk vel og svo fór ég til Hafn­ar­fjarðar í við­tal. Eftir það var ég send í tann­skoðun þrátt fyrir að ég hefði sýnt vega­bréfið og öll gögnin, sem sönn­uðu hver ég er.“

Tann­skoðun er aðferð sem notuð er til að greina aldur en hefur sætt mik­illi gagn­rýni fyrir að vera óná­kvæm og er bönnuð víðs vegar um heim. Skekkjan á mæl­ingum getur verið allt að fimm ár. Í umsögn Rauða Kross Íslands frá árinu 2019 um tann­skoðun segir: „Rauði kross­inn hefur um all­langt skeið gert alvar­legar athuga­semdir við ald­urs­grein­ingar Útlend­inga­stofn­unar.“ Neðar í skýrsl­unni kemur einnig fram að: „Gagnrýni Rauða kross­ins hefur aðal­lega snúið að því að oft á tíðum skorti veru­lega á að Útlend­inga­stofnun fram­kvæmi heild­stætt mat á aðstæðum ein­stak­lings og frá­sögn hans af ævi sinni [...]. Þá telur Rauði kross­inn að Útlend­inga­stofnun gefi nið­ur­stöðum röntgen­rann­sókna á tönnum allt of mikið vægi við ákvörðun ald­urs.“

Konan seg­ist glöð hafa farið í tann­skoð­un­ina ásamt öðrum ung­lingum enda hafi hún ekk­ert að fela. „Ég gerði allt sem þau báðu mig um,“ segir konan, sem fann fyrir óþæg­indum í höfði eftir skoð­un­ina. Nið­ur­stöður prófs­ins voru að konan væri eldri en vega­bréfið hennar segir til um. Henni var gefið nýtt fæð­ing­arár og það var í kjöl­farið skráð í íslenska kerfið. Það þýddi að hún var metin sem sjálf­ráða ein­stak­lingur en ekki barn, þrátt fyrir að vera með lög­mæt skil­ríki sem sýndu hennar rétta fæð­ing­arár.

„Þetta er ástæðan fyrir því að ég lendi í erf­ið­leikum hér, vegna þess að þau sam­þykkja ekki raun­veru­legt fæð­ing­arár mitt,“ segir hún með tárin í aug­unum. „Þetta lætur mig líta út fyrir að hafa gert eitt­hvað af mér og logið.“ Lögmaður kon­unnar, Davor Purusic, stað­festir frá­sögn hennar í sam­tali við Heim­ild­ina og bendir á að sænska ríkið hafi nú við­ur­kennt að upp­runa­legu skil­ríki hennar séu rétt. 

Davor Purusic, lög­maður kon­unnarSegir að um gróft mann­rétt­inda­brot sé að ræða í máli hennar.

Send úr landi 16 ára

For­eldrar kon­unnar búa á Íslandi og á hún þrjú systk­ini hér, þar af eru móðir hennar og tvö yngri systk­ini komin með kenni­tölu. Þar sem fjöl­skyldan kom ekki öll saman til lands­ins hefur umsóknum þeirra verið sinnt á ein­stak­lings­grund­velli. Vegna þessa var ákveðið að senda kon­una aftur til Sví­þjóðar á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar rúmu ári eftir að hún kom til Íslands. 

„Ég var 16 ára þegar ég var flutt á brott af Íslandi. Við fjöl­skyldan bjuggum í félags­heim­ili í Norð­ur­hellu í Hafn­ar­firði. Ég man að þetta kvöld var snjór úti og kalt.“ Tveir lög­reglu­menn og ein lög­reglu­kona báru hana út í bíl sem var ekki ein­kenn­is­merktur. „Þetta var rauður bíll.“ Hún rifjar upp að lög­reglu­fólkið hafi líka verið óein­kenn­is­k­lætt og minnt hana á ítölsku mafí­una. 

„Ég man eftir þessu lög­reglu­fólki enn þann dag í dag. Þau hafa gert þetta við fleiri stelpur sem ég þekki.“ Konan segir lög­reglu­fólkið hafa farið með sig til Kefla­víkur. „Ég grét og spurði þau hvers vegna þau væru að taka mig. Þau sögðu mér að bíða því að þau ætl­uðu með mig á ein­hvern stað. Síðan sögð­ust þau ætla aftur heim að sækja dótið mitt. Ég skildi ekki hvað var að ger­ast.“

Hrædd, ringluð og ein var konan sett í her­bergi sem minnti hana á fanga­klefa inni í lög­reglu­stöð Kefla­víkur. Þar var henni sagt að skipta um föt og voru allir hennar munir teknir í burtu. „Ég hágrét. Það kom eng­inn og spurði mig… bað mig að hætta að gráta eða til að segja mér að það yrði allt í lagi. Enginn. Fjöl­skyldan mín leit­aði að mér út um allt en fann mig ekki. Þau vissu ekki hvar ég var.“ 

„Fjöl­skyldan mín leit­aði að mér út um allt en fann mig ekki“

Morg­un­inn eftir var konan send til Sví­þjóðar. Íslenska lög­reglan fylgdi henni úr flug­vél­inni en skil­aði ekki gögnum sem tengd­ust mál­inu. Sænskur lög­reglu­maður kom henni til aðstoðar og skildi lítið í því að hún hefði verið send úr landi, bæði vegna þess að hún var ekki orðin sjálf­ráða og eins vegna þess að hún á fjöl­skyldu á Íslandi. „Hann ætl­aði ekki að senda mig til heima­lands­ins aftur og sagði: Þú ert frjáls í Svíþjóð. Ég get ekki aðstoðað þig neitt frekar, en þú getur farið hvert sem þú vilt fara.“ Sextán ára gömul labb­aði hún út af lög­reglu­stöð­inni alls­laus og nú á göt­unni. „Ég var á göt­unni af því að ég átti engan pen­ing, þekkti engan í Svíþjóð og var barn. Hvað héldu þau eig­in­lega að ég myndi geta gert til að bjarga mér?“

Fékk aftur neitun

Þegar útlend­ingar koma til lands­ins er þeim gert að auð­kenna sig með skil­ríkjum og afhenda þau til Útlend­inga­stofn­unar til að rík­is­lög­reglu­stjóri geti skoðað þau. Fram­kvæmi rík­is­lög­reglu­stjóri enga frek­ari grein­ingu á skil­ríkjum hefur Útlend­inga­stofnun ekki laga­lega heim­ild til að geyma skil­ríkin. Lögmaður kon­unnar segir það þekkt að Útlend­inga­stofnun haldi skil­ríkjum fólks samt sem áður hjá sér og neiti að skila þeim. Það eina sem faðir ungu kon­unnar gat gert til að sækja dóttur sína til Sví­þjóðar og nálg­ast skil­ríki sín var að draga umsókn sína um mann­úð­ar­leyfi til baka. Þar með þurrk­uð­ust út allir þeir mán­uðir sem hann hafði verið hér á Íslandi og hann neydd­ist til að byrja aftur á núll­punkti.

Útlend­inga­stofnunGeymir skil­ríki hæl­is­leit­enda án leyfis sam­kvæmt lög­manni kon­unnar.

Þegar konan kom aftur til Íslands með föður sínum kærði hún mál sitt til hér­aðs­dóm­stóls, enda taldi hún málið hafa fallið á 12 og 18 mán­aða regl­unni sem segir að ef við­kom­andi hafi verið hér lengur en þann tíma eigi hann rétt á mann­úð­ar­leyfi sam­kvæmt 74 gr. útlend­inga­laga. „Ég vann málið en Útlend­inga­stofnun áfrýj­aði dómnum.“ Mótrök stofn­un­ar­innar voru á þá leið að hún hefði vilj­andi tafið fyrir ferl­inu með því að þykj­ast vera undir 18 ára þegar hún kom fyrst til Íslands. Í úrskurði hér­aðs­dóms og Lands­réttar var ábyrgðin ekki talin vera hennar heldur stjórn­valda, enda bað konan ekki um að vera send í tann­grein­ingu og gat þar með ekki verið með ásetn­ing um að tefja fyrir umsókn­ar­ferl­inu. 

„Hún vann þetta mál og á lík­lega rétt á mann­úð­ar­leyfi í dag, en til þess að hafa rétt á mann­úð­ar­leyfi þurfa útlend­ingar, sam­kvæmt lögum, að sýna auð­kenni sitt,“ segir Davor lög­maður í sam­tali við Heim­ild­ina. Íslensk stjórn­völd hafa hafnað vega­bréfi kon­unnar ásamt öðrum auð­kennum því að fæð­ing­ar­árið sem þar er til­greint sam­rým­ist ekki nið­ur­stöðum tann­grein­ingar. 

„Hún vann þetta mál og á lík­lega rétt á mann­úð­ar­leyfi í dag“

Konunni var sagt að ný umsókn yrði gerð fyrir hana sem hæl­is­leit­anda. Hún fékk synjun á sömu for­sendum, að geta ekki sýnt fram á auð­kenni sitt.

Útlend­inga­stofnun á einnig að hafa fengið vís­bend­ingu frá óskil­greindum tengilið í heima­landi kon­unnar um að þau gögn sem notuð voru sem grund­völlur fyrir útgáfu vega­bréfs væru ekki trú­verðug. Samt sem áður hafa yfir­völd í heima­land­inu end­ur­nýjað vega­bréf hennar þrisvar og Svíar við­ur­kennt skil­ríkin. Ekki liggur fyrir hvort að Útlend­inga­stofnun hafi form­lega haft sam­band við yfir­völd í heima­landi kon­unnar til að sann­reyna skil­ríkin.  

Beið í þrjá tíma 

Konan kærði synjun umsókn­ar­innar til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Formaður kæru­nefndar útlend­inga­mála er Þor­steinn Gunn­ars­son, sem áður var stað­geng­ill for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar. Þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, skip­aði Þorstein í emb­ættið en ákvörð­unin var harð­lega gagn­rýnd af ýmsum félaga­sam­tökum. 

„Sam­kvæmt lögum er hlut­verk kæru­nefndar útlend­inga­mála að vera sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem á að úrskurða um mál sem kærð eru til henn­ar, en eðli máls­ins sam­kvæmt eru það fyrst og fremst úrskurðir frá ÚTL. Helsta hlut­verk Þor­steins í nýju starfi sem for­maður kæru­nefndar er því að rann­saka og úrskurða um mál stofn­unar sem hann hefur sjálfur stýrt um ára­bil, sem sam­ræm­ist varla hlut­verki hennar sem „sjálf­stæð“ stjórn­sýslu­nefnd,“ sagði í yfir­lýs­ingu Sam­tak­anna ‘78, No Borders, Solaris, Röskvu, Félags­ins Íslands-Palest­ína og Félags hern­að­ar­and­stæð­inga ásamt fleirum í kjöl­far ráðn­ing­ar­innar.

„Ég má ekki vinna, samt er ég búin að fá nokkur atvinnu­tæki­færi. Ég hef sótt um leyfi hjá Útlend­inga­stofnun og þau segja nei.“ 

Konan seg­ist farin að upp­lifa neit­anir og frels­is­skerð­ingu sína sem per­sónu­lega ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, frekar en ákvörðun sem er byggð á sterkum laga­legum grunni. Hún segir fram­komu starfs­manna stofn­unn­ar­innar óboð­legar og lág­kúru­legar. Í eitt skipti beið konan í þrjár klukku­stundir ásamt föður sínum hjá Útlend­inga­stofnun án þess að fá aðstoð og voru þau síðan rekin út með látum þegar stofn­unin lok­aði. 

Skilaboð frá Útlend­inga­stofnunUnga konan segir þessi skila­boð lýsandi fyrir starfs­hætti stofn­un­ar­innar.

Svaf í sturtunni

Fjöl­skylda ungu kon­unnar býr nú í Reykja­vík. For­eldrar hennar þurftu sjálf að verða sér úti um hús­næði í höf­uð­borg­inni vegna anna hjá félags­þjón­ust­unni eftir að fólk á flótta frá Úkraínu sótti hingað hæli. Þau fluttu á Berg­þóru­götu í tveggja her­bergja íbúð með vil­yrði fyrir leigu­samn­ing í eitt ár. Eftir aðeins tvo mán­uði hringdi leigusal­inn og sagði þeim að yfir­gefa íbúð­ina því að hann vildi nota hana sjálfur. Á stundum sem þessum finnur konan fyrir því að vera ekki með stuðn­ings­net á Íslandi eða laga­leg rétt­indi. Félags­ráð­gjafi benti þeim á að flytja inn á hostel í nokkrar vikur til að brúa bilið milli íbúða. Þá flutt­ust þau inn á Hostel B47 hjá Aust­ur­bæj­ar­skóla og voru fimm saman í einu her­bergi með sal­erni. 

Það reynd­ist kon­unni erfitt að vera í her­bergi með allri fjöl­skyld­unni enda hafði hún lítið sem ekk­ert per­sónu­legt rými. „Ég flutti inn á bað­her­bergið. Tók kodda og teppi með mér.“ Í hvert skipti sem ein­hver í fjöl­skyld­unni þurfti að pissa á nótt­unni stóð konan upp og beið frammi eða þótt­ist vera sof­andi svo hún þyrfti ekki að færa sig. „Ég svaf í sturt­unni og kló­settið var beint við hlið­ina á. Þetta var hræði­legt.“ Á þessum tíma átti konan erfitt með að halda athygli í skól­anum en hún stund­aði nám hjá Náms­flokkum Reykja­víkur. 

Aðspurð hvort að hún hefði farið eitt­hvert annað ef móðir hennar og systk­ini væru án kenni­tölu segir konan: „Ég veit ekki hvert við ættum að fara. Ég hef ekki hug­mynd. Núna er þetta svona, Ísland er heima og það er eng­inn að fara neitt.“ 

Gögnin ekki send

Konan sótti um rík­is­borg­ara­rétt snemma á síð­asta ári. Ferlið tók eitt ár en hún fékk á end­anum neitun og seg­ist hafa verið von­svikin. „Ef ég er alveg hrein­skilin þá var þetta mín síð­asta von­ar­glæta. Ástæðan fyrir því er að inni á þingi eru grund­vallar ákvarð­anir teknar er varða lög, mann­rétt­indi og börn. En þetta er bara inn­an­tóm gríma. Það er ekk­ert þarna á bak­við. Útlend­inga­stofnun sendi aldrei gögnin mín til þings­ins.“ Hún hafði sam­band við Útlend­inga­stofnun og fékk það stað­fest yfir sím­ann að senda ætti gögnin hennar í mars á þessu ári, eftir að hún hafði fengið synjun.

„Skýrslan mín er ennþá á Dalvegi 18.“ Konan skilur ekki á hvaða for­sendum gögn hennar voru ekki send. Hún seg­ist líka hafa sótt um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu eftir að hún kom frá Svíþjóð en fékk aldrei svar við þeirri umsókn. Í síð­asta mán­uði kom svo skýrt svar frá Útlend­inga­stofnun.

Fimmtán dagar til að fara úr landi

„Útlend­inga­stofnun sendi mér skjal með nýrri ákvörðun þeirra þar sem stendur að ég hafi 15 daga til að fara frá Íslandi. Mér verður brott­vísað úr landi og bannað að koma til Íslands í tvö ár.“ Í skjal­inu frá Útlend­inga­stofnun er það ár sem tann­grein­ingin ákvarð­aði sett sem óstað­fest fæð­ing­arár. „Ég hef skjalið með mér hvert sem ég fer vegna þess að lög­reglan getur komið hvenær sem er og tekið mig.“

Konunni var einnig synjað um dval­ar­leyfi á grund­velli við­auka 13 í útlend­inga­lögum er lúta að tíma­bund­inni heim­ild til að veita barna­fjöl­skyldum dval­ar­leyfi hér. Í ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar segir meðal ann­ars í nið­ur­stöðukafla: „Þar sem umsækj­andi hefur ekki sannað auð­kenni sitt þá hefur umsækj­andi ekki heldur sýnt fram á að hún sé nán­asti aðstand­andi útlend­ings sem fengið hefur dval­ar­leyfi skv. 1. mgr. bráða­birgða­á­kvæð­is­ins.“

Konan segir: „Ég væri ham­ingju­söm ef ég sæi ein­hvern í minni stöðu sigra og fá rétt­læti. Ég hef séð mikið af fólki tala um mann­rétt­indi en sé ekk­ert þeirra fylgja þeim eftir.” Hún minn­ist aftur á stríðið í Úkraínu þar sem fjöldi fólks á flótta fengu dval­ar­leyfi vegna sér­úr­ræðis. „Þið talið um börnin frá Úkraínu og hve mikið þau hafa gengið í gegnum vegna Rússa. En hvað gerðu þið við mig? Senduð mig í burtu frá fjöl­skyldu minni þegar ég var 16 ára gömul. Hvernig ætlið þið að svara fyrir það? Ég finn ekki neina ástæðu sem gæti svarað því. Fólk hér talar um mann­rétt­indi þegar það hentar þeim, ann­ars er því alveg sama. Eins og í mínu til­felli.“

„Útlend­inga­stofnun hefur eytt tím­anum mínum og bernsku­árum með því að hugsa að ég sé engin og ekk­ert. Ef ég legg mig fram í skól­anum og verð eitt­hvað þá kannski end­ur­hugsa þau hverjum þau hafa verið að neita. Kannski sjá þau eftir ákvarð­ana­töku sinni og koma betur fram við ein­hvern annan í fram­tíð­inni, ein­hvern eins og mig. Þá er ég sátt.“

„Þið talið um börnin frá Úkraínu og hve mikið þau hafa gengið í gegnum vegna Rússa. En hvað gerðu þið við mig? Senduð mig í burtu frá fjöl­skyldu minni þegar ég var 16 ára gömul“

Lögmaður kon­unnar kærði ákvörð­un­ina og und­ir­býr nú grein­ar­gerð sem fer fyrir kæru­nefnd útlend­inga­mála. Í skjal­inu frá Útlend­inga­stofnun kom fram að kæran fresti ekki rétt­ar­á­hrifum. Hún getur því verið flutt úr landi hvenær sem er.

Fái konan neitun er hægt að fara með málið fyrir dóm­stóla en því fylgir gríð­ar­legur kostn­aður sem konan getur með engu móti greitt fyrir sjálf þar sem hún fær ekki leyfi til að vinna. Framtíð hennar veltur því á ákvörðun kæru­nefndar, en miðað við fyrri reynslu er afar ólík­legt að sjón­ar­mið Útlend­inga­stofn­unar breyt­ist. „Það er bara svo gróft mann­rétt­inda­brot í þessu máli að maður getur ekki tekið við þessu þegj­andi,“ segir lög­maður hennar.

Hún grætur. „Með þetta vit­lausa fæð­ing­arár í kerf­inu get ég ekki farið neitt. Ég er ekki þessi mann­eskja. Jafnvel þó að þau hafi sent þessa ákvörðun til mín þá er þetta ekki ég. Þau geta ekki bara sett nafnið mitt við þessa dag­setn­ingu. Þetta er ekki ég!“  

Aðspurð hvernig henni líði með að hafa fengið bréfið segir konan: „Þegar ég var að labba hingað reyndi ég að falla inn í umhverfið og fela mig. Hvert sem ég fer ótt­ast ég að vera tekin á brott.“ En bætir svo ákveðin við: „Ég veit að ég er ekki að fara neitt, sama hvað þau gera við mig. Síðast var ég barn en núna er ég orðin full­orðin og ég ætla ekki að fara neitt. Ég geri hvað sem er til að vera hjá fjöl­skyld­unni minni.“

Sterkur námsmaður

Hana dreymir um að verða fæð­ing­ar­læknir. „Konur ganga í gegnum svo mikið. Til þess að hjálpa þeim skiptir máli að skilja þær og geta veitt stuðn­ing. Auðvitað langar mig líka að bjóða nýfædd börn vel­komin í heim­inn.“ Konan segir að það myndi veita henni inn­sýn inn í feg­urð og sak­leysi barn­æsk­unnar, eitt­hvað sem hún fékk ekki að upp­lifa sjálf. 

Magnús IngvasonSegir hana standa sig vel í námi.

Hún stundar nám í Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla til þess að und­ir­búa sig fyrir lækn­is­fræði­nám. Magnús Ingvason skóla­meist­ari segir kon­una standa sig vel í nám­inu og sýna mik­inn áhuga. FÁ hefur einnig tekið á móti nem­endum frá Úkraínu, Venes­ú­ela, Afganistan og Kólumbíu. „Það er gott fyrir alla ein­stak­linga að vera í skóla og námi. Eins og með hana, þá hefur hún staðið sig ævin­týra­lega vel hérna hjá okkur og það er nógu góður rök­stuðn­ingur fyrir að gefa þessum ung­mennum séns.“ 

Kennarar kon­unnar sendu bréf á Útlend­inga­stofnun á síð­asta ári þar sem yfir­vof­andi brott­vísun var mót­mælt. Þar segir meðal ann­ars: „Það nístir sann­ar­lega að verða vitni að slíkri aðgerð og ljóst er að ein­stak­lingur má sín einskis þegar töl­fræði og úreltur laga­bók­stafur virð­ist ein­göngu ráða för í ákvarð­ana­tökum í máli sem þessu.“

Hjálp­ar­starf kirkj­unnar hefur stutt við bakið á kon­unni í nokkur ár. „Við greiðum fyrst og fremst skóla­gjöldin og bækur til þess að hún geti verið í fram­halds­skóla því hún fær hvergi stuðn­ing í þetta,“ segir Vilborg Odds­dóttir félags­ráð­gjafi í sam­tali við Heim­ild­ina og lýsir kon­unni sem metn­að­ar­fullri. Núna í sumar er konan sjálf­boða­liði hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar og nýtir þar tungu­mála­kunn­áttu sína til að aðstoða aðrar konur. Aðspurð hvers vegna það skipti máli að styðja við kon­una segir Vilborg: „Hún er eyland. Hún er án nokk­urs stuðn­ings í alltof mörg ár. Hún er látin hanga í lausu lofti í svo langan tíma og mér finnst erfitt að horfa upp á það að svona ung stelpa sé látin vera í þess­ari stöðu.“

„Mér finnst erfitt að horfa upp á það að svona ung stelpa sé látin vera í þess­ari stöðu“

Áður hafði konan lokið áföngum hjá Náms­flokkum Reykja­víkur. Náms- og starfs­ráð­gjafi skó­lands, Jódís Kára­dóttir, lýsir kon­unni sem skemmti­legum náms­manni, áhuga­samri, lausn­a­mið­aðri, dríf­andi og jákvæðri. „Það var gaman að fá að fylgja henni eftir og sjá fram­far­irnar.“ 

Jódís Kára­dóttirUmgekkst kon­una hjá Náms­flokkum Reykja­víkur.

Skólinn býður ekki upp á áfanga kennda á ensku. Því sat konan íslenska tíma þrátt fyrir að hafa ekki náð fullum tökum á tungu­mál­inu og fékk svo aðstoð á ensku sam­hliða því. Í bréfi til kæru­nefndar útlend­inga­mála skrif­aði Jódís fyrir hönd Náms­flokka Reykja­víkur að það væri mat kenn­ara skól­ans um kon­una „[...] að hún yrði góður sam­fé­lags­þegn og við heppin að fá hana inn í sam­fé­lagið til fram­búðar. Hún á fjöl­skyldu hér og hefur skotið rótum í sam­fé­lag­inu.“

Sendi bréf til Katrínar

Eitt af upp­á­halds fögum ungu kon­unnar eru stjórn­mál enda hefur hún brenn­andi áhuga á þeim. 

„Ég hef sent bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra en hún svarar aldrei. Og ég sendi bréf til kon­unnar sem var dóms­mála­ráð­herra og hún svar­aði ekki heldur. Ég hef líka sent bréf til ann­arra ráð­herra en engin svarar. Kannski hafa þau heyrt um mig því að ég sótti um rík­is­borg­ara­rétt… ég vil bara ná rétt­læti og að for­sæt­is­ráð­herr­ann spyrji Útlend­inga­stofnun hvers vegna þau koma svona fram við mig þegar ég er búin að segja þeim hver ég er allt frá fyrsta degi.“

Katrín Jak­obs­dóttirFor­sæt­is­ráð­herra hefur ekki svarað bréfum kon­unnar.

Konan er metn­að­ar­full og vill gera allt sem hún getur til þess að eiga bjarta fram­tíð en dregur upp dökka mynd af sínu dag­lega lífi. „Ég get ekki labbað neins staðar, ekki einu sinni með systk­inum mínum. Ég get ekki sagt neinum hver ég er útaf Útlend­inga­stofnun. Ég er engin, ég er ekki til.“

Konan glímir við þónokkra erf­ið­leika vegna þeirra áfalla sem hún hefur upp­lifað. „Nokkrum sinnum í mán­uði fæ ég mik­inn verk í eyrað. Allt í einu finnst mér of mikil læti og líður eins og ég sé í stríð­inu… eins og ein­hver sé að stinga hníf í heil­ann minn. Allt snýst upp og niður og verður svart. Ég get ekki höndlað það að neinn standi nálægt mér. Þetta leiðir yfir í vinstra augað mitt og varir í nokkrar mín­útur eða kemur í bylgjum yfir nokkra daga.“ Hún seg­ist ekki geta bókað tíma hjá lækni eða sér­fræð­ingi án kenni­tölu. Það hvílir þungt á kon­unni að þurfa að útskýra fyrir öllum þeim sem hún hittir og veita henni aðstoð að hún sé ekki mann­eskjan sem þau sjá í kerf­inu heldur sé hún í raun yngri.

Hún á erfitt með að koma reynslu sinni í orð án þess að fara í til­finn­inga­legt upp­nám. „Ég get setið hér með þér, brosað til þín og spjallað. En það sem er innra með mér veit ég ein. Það gæti eng­inn skilið það, því að ég get ekki útskýrt það.“ 

Konan þakkar Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar, skól­unum sem hún hefur gengið í og góðu fólki fyrir stuðn­ing og seg­ist ekki ætla að gef­ast upp. „Þetta er heim­ilið mitt og ég ætla ekki að fara neitt. Sama hvað. Hér er fjöl­skyldan mín, ég geng í skóla og hef verið að leggja allt mitt að mörkum til að verða hluti af sam­fé­lag­inu.“ 

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er sorglegt mal og liktar af Þvi sem Hægri menn vilja . Trulega er buið að Planta mönnum með Hægri skoðun FASISTUM hja Utlingastofnun. Þeim hefur verið komið a Jötuna viða. Þjoðkirkjan er gegnum sikt, Domsmal, og þar sem NAZISTAR Raða, Jon Raæherra sem for með þessa malaflokka er sökudolgirinn.
    1
  • Hryllingssaga sem minnir á vinnubrögð stjórnmálaafls í Þýskalandi sem maður að nafni Hitler stofnaði og stýrði.
    6
  • Elías Ágústsson skrifaði
    Hefði ég verið tanngreindur fjórtán ára hefði ég eflaust verið talinn eldri en átján; var kominn með alla endajaxla og flestar fullorðinstennur með eldgömlum skemmdum.
    6
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Útlendingahatur Sjálfstæðisflokksins í hnotskurn.
    6
  • Magnea Einarsdóttir skrifaði
    taka bara tengdadóttursnúninginn hennar jónínu bjartmars á þetta mál og veita þessari stúlku ríkisborgararétt. allt hægt ef viljinn er fyrir hendi
    7
  • Jóhann Einarsson skrifaði
    Hvað er eiginlega að gerast hér á landi?
    Er ekki hægt að hjálpa þeim sem svona er
    Komið fram við. Eða eru þetta helberar lygar??
    Ótrúlegt ef þetta er SATT
    6
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Útlendingahatrið er augljóst.
    6
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Það er verið flækja einföld mal, sem barnaskola börn gætu leyst.

    Spilligin i þessu landi okkar er komin ut fyrir öll mörk og var hun slæm fyrir

    Thordis eg sammala þer i flestu en spillinguna verður að uppræta.

    Thordis HVAÐ HAFA MARGIR LIKA FENGIÐ FYRIRGREIÐLU SINNA MALA VEGNA TENGSLA
    VIÐ POLITIKUSA OTAL.
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,„Ég hef sent bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra en hún svarar aldrei."

    VG liðar tala mikið um allt mögulegt en eru svo vonlausir í öllu , en hvers vegna ?
    8
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Þvílíkur viðbjóður.
    Fasisminn og harkan er lærð í útlöndum á kostnað skattgreiðandans sem finnst allt í lagi að leyfa fólki að koma til islands og búa sér nýtt líf.
    Efnameiri í Garðabæ og atvinnurekendur eru að flytja inn ódýrt vinnuafl í hópum og fá fyrirgreiðslu í kerfinu. Frá sömu skrifstofu og þessi kona þarf að díla við.
    Island er algjört skran land. Allt er drasl á Íslandi nema vatnið í krananum og útsýnið úr glugganum. Mannréttindi fyrir neðan allar hellur og alltaf sparkað í minnimáttar en snobbað fyrir hyski sem stelur fyrir framan þig.
    22
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár