Kerfið sem Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki breyta: Ávinningur stærstu útgerðanna nærri tíu sinnum hærri en veiðigjöldin
FréttirKvótinn

Kerfið sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill ekki breyta: Ávinn­ingur stærstu útgerð­anna nærri tíu sinnum hærri en veiði­gjöldin

Stærstu útgerðir lands­ins hafa á liðnum árum greitt út mik­inn arð og bætt eig­in­fjár­stöðu sína til muna. Veiði­gjöldin sem útgerðin greiðir í dag eru ein­ungis um 1/4 hluti þeirra veiði­gjalda sem rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna vildi inn­leiða. Nefnd um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi hætti nýlega störfum vegna and­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um breyt­ingar á gjald­heimt­unni.
Sjá eftir að hafa ekki stöðvað „kynferðislega áreitni“ Brynjars
FréttirACD-ríkisstjórnin

Sjá eftir að hafa ekki stöðvað „kyn­ferð­is­lega áreitni“ Brynjars

Fund­ar­stjóri og fund­ar­maður á fundi Sið­menntar sjá eftir því að hafa ekki gripið inn í. „Ég fann mig knúna til að biðja hana afsök­unar á að hafa ekki stigið fram og beðið mann­inn um að hætta,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir í kosn­inga­þætti Stöðvar 2 vegna til­burða Brynjars Níels­sonar gagn­vart Stein­unni Þóru Árna­dóttur.
Skynsamlegra að nota einskiptistekjur til að greiða niður skuldir
FréttirRíkisfjármál

Skyn­sam­legra að nota ein­skiptis­tekjur til að greiða niður skuldir

Hagdeild ASÍ telur lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins um 100 millj­arða útgjalda­aukn­ingu sam­hliða skatta­lækk­unum stang­ast á við mark­mið laga um opin­ber fjár­mál. Ásdís Krist­jáns­dóttir hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins er einnig þeirrar skoð­unar að nota beri arð­greiðslur úr bönk­unum til að greiða niður skuldir hins opin­bera.
Bjarni um viðskipti með Sjóvá sem fóru til saksóknara: „Mér líst mjög vel á þetta mál“
FréttirViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni um við­skipti með Sjóvá sem fóru til sak­sókn­ara: „Mér líst mjög vel á þetta mál“

Sér­stakur sak­sókn­ari rann­sak­aði við­skipti stjórn­enda Íslands­banka með hluta­bréf bank­ans árið 2005 sem meint inn­herj­a­við­skipti. Stjórn­end­urnir tóku ákvörðun um að selja trygg­inga­fé­lagið Sjóvá sem skap­aði 4 millj­arða bók­færðan hagnað og hækkun hluta­bréfa þeirra sjálfra. Bjarni Bene­dikts­son átti í nánum sam­skiptum við Bjarna Ármanns­son á þessum tíma og áður og ræddu þeir meðal ann­ars hluta­bréfa­verð í Íslands­banka. Föð­ur­bróðir Bjarna var einn þeirra sem græddi per­sónu­lega á hluta­bréfa­stöðu í bank­anum út af Sjó­vá­r­söl­unni.

Mest lesið undanfarið ár