GlitnirHoldco vill þingfestingu eftir kosningar og krefst þess aftur að Stundin afhendi gögn

Fram kemur í stefnu slita­bús Glitnis vegna lög­banns­ins á Stundina og Reykja­vik Media að gagna­lek­inn hafi svert orð­spor Glitnis Holdco og skert rétt­indi „„Eng­ey­inga“ og við­skipta­fé­laga þeirra“.

GlitnirHoldco vill þingfestingu eftir kosningar og krefst þess aftur að Stundin afhendi gögn
Forsíða Stund­ar­innar Fjallað var um skörun við­skipta og stjórn­mála í störfum Bjarna Bene­dikts­sonar í Stund­inni, sem og að skýr­ingar hans á þeim hefði reynst stang­ast á við gögn í mál­inu.

Glitnir HoldCo fer fram á að Stundin og Reykja­vik Media afhendi öll gögn úr Glitni banka hf. og afrit af þeim sem blaðið hefur í fórum sínum. Þetta kemur fram í stefnu sem Stund­inni var afhent í dag, en farið er fram á að málið verði lagt fram og þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 31. októ­ber, þremur dögum eftir kosn­ingar. Lögmaður Stund­ar­innar óskaði eftir því að málið yrði þing­fest á morgun, 24. októ­ber, en við því var ekki orðið. 

Í stefn­unni er þess kraf­ist að lög­bannið sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lagði á Stundina og Reykja­vik Media þann 16. októ­ber síð­ast­lið­inn verði stað­fest, en jafn­framt að við­ur­kennt verði að fjöl­miðl­unum sé óheim­ilt að birta eða fá birtar fréttir í öðrm fjöl­miðlum sem byggja á eða eru unnar upp úr trún­að­ar­gögnum úr Glitni.  Þá er farið fram á að fjöl­miðl­unum verði gert að afhenda Glitni HoldCo öll gögn og afrit af þeim, hvort sem þau eru á raf­rænu eða öðru formi, og að máls­kostn­að­ur­inn lendi alfarið á Stund­inni og Reykja­vik Media.

Skorað er á stefndu að afhenda gögnin dóm­ara í trún­aði og gegn þagn­ar­skyldu. Tekið skal fram að Stundin mun ekki verða við þeirri kröfu, enda telur blaðið að slíkt myndi tefla trún­aði blaðs­ins við heim­ild­ar­menn í hættu og ganga gegn grund­vall­ar­gildum blaða­mennsku í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. 

Í grein­ar­gerð stefn­anda er full­yrt að Glitnir Holdco hafi þann 13. októ­ber „fengið það stað­fest“ að gögnin sem Stundin byggi yfir ein­skorð­uð­ust ekki við ein­stak­linga sem þegar hefði verið fjallað um heldur væri að finna þar upp­lýs­ingar um „þús­undur fyrr­ver­andi og núver­andi við­skipta­manna stefn­anda“. Í ljósi þess að fyr­ir­huguð var frek­ari umfjöllun byggð á gögn­unum hefði Glitnir HoldCo talið nauð­syn­legt að krefj­ast lög­banns.

Fram kemur að erfitt sé „að mæla það tjón á ímynd og orð­spori stefn­anda [Glitni HoldCo] sem af hátt­semi stefndu [Útgáfu­fé­lag­inu Stund­inni og Reykja­vik Media] hlýst“ og að „ólög­mæt hátt­semi“ fjöl­miðl­anna leiði til skerð­ingar á rétt­indum Glitnis HoldCo og fyrr­ver­andi og núver­andi við­skipta­manna. Er sér­stak­lega minnst á „lán­veit­ingar til svo­kall­aðra „Eng­ey­inga“ og við­skipta­fé­laga þeirra“ í þessu sam­hengi. Telur stefn­andi að skil­yrði fyrir tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsu séu fyrir hendi, enda varði málið upp­lýs­ingar sem séu und­ir­orpnar trún­aði og þagn­ar­skyldu sam­kvæmt lögum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár