Þingmenn umgangast endurgreiðslukerfið frjálslega þrátt fyrir afdráttarlaus fyrirmæli siðareglna
Fréttir

Þingmenn umgang­ast end­ur­greiðslu­kerfið frjáls­lega þrátt fyrir afdrátt­ar­laus fyr­ir­mæli siða­reglna

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rukkar Alþingi fyrir akst­urs­kostnað vegna próf­kjörs­bar­áttu og þátta­gerðar á ÍNN. „Þingmenn skulu sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál,“ segir í siða­reglum þing­manna.
Ásgeir mælir gegn opinberu eignarhaldi  leigufélaga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“
Fréttir

Ásgeir mælir gegn opin­beru eign­ar­haldi leigu­fé­laga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði, hélt fyr­ir­lestur um leigu­fé­lög og hús­næð­is­mark­að­inn fyrir stærsta leigu­fé­lag lands­ins fyrr í dag. Hann var áður efna­hags­ráð­gjafi GAMMA sem á eitt stærsta leigu­fé­lag lands­ins. Ásgeir seg­ist ekki hafa komið nálægt GAMMA frá 2014 og að hann vinni ekki fast fyrir neina hags­mun­að­ila á leigu­mark­aðnum í dag.
Stjórnun kynferðisbrotadeildar ábótavant – Sigríður skipti yfirmanni út fyrir stjórnanda með minni reynslu af rannsókn kynferðisbrota
FréttirLögregla og valdstjórn

Stjórnun kyn­ferð­is­brota­deildar ábóta­vant – Sigríður skipti yfir­manni út fyrir stjórn­anda með minni reynslu af rann­sókn kyn­ferð­is­brota

Núver­andi fyr­ir­komu­lag við stjórnun kyn­ferð­is­brota­rann­sókna má að miklu leyti rekja til skipu­lags­breyt­inga sem gerðar voru eftir að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við sem lög­reglu­stjóri. Athygli vakti þegar Árni Þór Sig­munds­son var gerður að yfir­manni kyn­ferð­is­brota­rann­sókna í stað Krist­jáns Inga Krist­jáns­sonar, þótt Kristján Ingi hefði miklu meiri reynslu af slíkum rann­sóknum.
Hagsmunaðilar kaupa útsendingartíma á Hringbraut til að fjalla um meinta andstæðinga sína
FréttirFjölmiðlamál

Hags­mun­að­ilar kaupa útsend­ing­ar­tíma á Hring­braut til að fjalla um meinta and­stæð­inga sína

Þætt­irnir um Sam­herj­a­málið og Sig­urplasts­málið á Hring­braut voru kost­aðir af hags­mun­að­ilum í gegnum milli­lið. Í þátt­unum, sem eru skil­greindir sem kynn­ing­ar­efni, er hörð gagn­rýni á Seðla­banka Íslands, Má Guð­munds­son, lög­mann­inn Grím Sig­urðs­son og Arion banka. Fram­leið­andi þátt­anna líkir efn­is­vinnsl­unni við hver önnur við­skipti eins og sölu á bíl, íbúð eða greiðslu launa. Hring­braut telur birt­ingu þátt­anna stand­ast fjöl­miðla­lög.
Kostar minnst þrettán milljarða að flytja olíutankana frá Örfirisey
Fréttir

Kostar minnst þrettán millj­arða að flytja olíu­tank­ana frá Örfirisey

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hefur talað fyrir íbúa­byggð í stað olíu­birgða­stöðv­ar­innar í Örfirisey. Verk­efn­is­stjórn taldi árið 2007 Örfirisey vera besta kost­inn fyrir olíu­birgð­ar­stöð hvað varðar kostnað og áhættu. Kostn­aður við að flytja stöð­ina er minnst 13-16 millj­arðar króna að núvirði.
Einhliða, persónuleg ákvörðun Steingríms að birta tölur um hæstu akstursgjöld þingmanna
FréttirAkstursgjöld

Einhliða, per­sónu­leg ákvörðun Stein­gríms að birta tölur um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna

Stein­grími J. Sig­fús­syni fannst rétt að veita upp­lýs­ingar um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna án þess að nöfn þeirra kæmu fram. Fyrir rúmum mán­uði síðan var skrif­stofu­stjóri Alþingis, Helgi Bern­ód­us­son, á annarri skoðun og vildi ekki veita Stund­inni þessar upp­lýs­ingar. Málið sýnir hversu ein­kenni­legt það er að upp­lýs­inga­gjöf þjóð­þings sé háð duttl­ungum og per­sónu­legu mati ein­stakra starfs­manna þess.
Ferðaþjónustubændur í máli við Íshesta
Fréttir

Ferða­þjón­ustu­bændur í máli við Íshesta

Hjalti Gunn­ars­son og Ása Viktoría Dalkarls eru í mála­ferlum við fyr­ir­tækið Íshesta vegna hesta­ferða sem þau fóru sum­arið 2016 en hafa enn ekki fengið greitt fyrir. Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son ferða­mála­stjóri var fram­kvæmda­stóri á þeim tíma. Íshestar fóru í þrot nokkrum árum eftir að Fannar Ólafsson keypti félagið, en hann seg­ist hafa stór­tapað á við­skipt­unum og greitt verk­tökum úr eigin vasa.
ASÍ varar við óábyrgri hagstjórn og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hunsa ábendingar sérfræðinga
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

ASÍ varar við óábyrgri hag­stjórn og gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir að hunsa ábend­ingar sér­fræð­inga

ASÍ furðar sig á stað­hæf­ingum fjár­mála­ráð­herra um að minni sam­keppn­is­hæfni sé aðal­lega vegna launa­þró­unar: „Minni sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­greina má fyrst og fremst rekja til styrk­ingar á nafn­gengi krón­unnar. Hlut­deild launa­fólks í hag­vext­inum er síst of stór.“
Þarf að hækka leiguna hjá stærsta leigufélagi Íslands?: Vaxtagjöldin 330 milljónum hærri en rekstrarhagnaðurinn
FréttirLeigumarkaðurinn

Þarf að hækka leig­una hjá stærsta leigu­fé­lagi Íslands?: Vaxta­gjöldin 330 millj­ónum hærri en rekstr­ar­hagn­að­ur­inn

Heima­vellir skil­uðu 2,7 millj­arða króna hagn­aði í fyrra en sá hagn­aður er til­kom­inn af bók­færðri hækkun á um 2000 íbúðum fyr­ir­tæk­is­ins en ekki af sterkum rekstri. Fram­kvæmda­stjór­inn segir vaxta­kostn­að­inn vera háan og að mark­miðið með skrán­ingu Heima­valla á markað sé að lækka vaxta­kostn­að­inn.

Mest lesið undanfarið ár