Ásmundur fékk rúmlega tvöfalda þá upphæð sem rekstur bílsins kostar

Samkvæmt útreikn­ingum Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda kostar rekstur bíls Ásmundar Frið­riks­sonar rúm­lega helm­ingi minna en Alþingin greiddi honum vegna akst­urs­kostn­aðar. Hann fékk því um tvær og hálfa milljón króna í end­ur­greiðslur umfram áætl­aðan kostnað.

Ásmundur fékk rúmlega tvöfalda þá upphæð sem rekstur bílsins kostar
Ásmundur Frið­riks­son Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur fengið end­ur­greiðslur frá íslenska rík­inu vegna akst­urs síns upp á 385 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali.

Rekstur á bíl Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, hefði átt að kosta rúm­lega helm­ingi minna en þær 4,6 millj­ónir króna sem hann fékk end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar frá Alþingi. Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) áætlar að það kosti rúmar 2 millj­ónir króna á ári að reka Kia Sportage jepp­ling Ásmundar, miðað við notkun hans á bílnum í fyrra, sam­kvæmt útreikn­ingum sem Morg­un­út­varp Rásar 2 óskaði eftir.

Ásmundur keypti bíl­inn not­aðan í des­em­ber 2016, en nýr kost­aði slíkur bíll 6,7 millj­ónir króna í maí 2016. Árið 2017 ók Ásmundur tæpa 48 þús­und kíló­metra og því reiknar FÍB með því að bíll­inn falli meira í verði en með­al­bíll, eða um 18% milli ára. Ásett verð bíls­ins nú gæti því verið í kringum 3,8 millj­ónir króna.

FÍB reiknar einnig fjár­magns­kostnað inn í dæmið, eða þá töp­uðu inn­láns­vexti sem hefðu feng­ist fyrir pen­ing­ana sem bíll­inn kost­aði. Alls nemur kostn­að­ur­inn 2.071.376 krónum, eða meira en helm­ingi minna en Alþingi greiddi Ásmuni í akst­urs­bætur. FÍB reikn­aði einnig rekstr­ar­kostnað bíls­ins ef hann hefði verið keyptur nýr og hækkar þá upp­hæðin í 2,44 millj­ónir króna.

Útreikningar FÍB líta svona út:

653.676 kr – Dísil­olía
270.000 kr – Viðhald og við­gerðir
90.000 kr   – Hjól­barðar
160.000 kr – Trygg­ingar
26.000 kr   – Skattar og skoðun
13.000 kr   – Bíla­stæða­kostn­aður
36.000 kr   – Þrif og fleira
684.000 kr – Verð­rýrnun
138.700 kr – Fjár­magns­kostn­aður
Samtals: 2.071.376 krónur

Greiðslur umfram áætl­aðan kostnað: Um 2,5 millj­ónir króna.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjör þingmanna

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár