Framkvæmdastjórinn vill ekki svara fyrir viðskiptin tengd Guðmundi í Brimi

FISK Seafood, útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, hefur selt Guðmundi Krist­jáns­syni í Brimi hluta­bréf í Brimi sem fyr­ir­tækið var að kaupa. Fyrst áttu FISK og Guð­mundur í inn­byrðis við­skiptum með hluta­béf í Vinnslu­stöð­inni í Eyjum og nú í Brimi.

Framkvæmdastjórinn vill ekki svara  fyrir viðskiptin tengd Guðmundi í Brimi
Guð­mundur og FISK Seafood Guð­mundur Krist­jáns­son útgerð­ar­maður hefur átt í mikilum inn­byrðis við­skiptum við FISK Seafood, útgerð­ar­arm Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, síð­ast­liðið ár.

Fram­kvæmda­stjóri FISK-Seafood, útgerð­ar­fé­lags Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, hefur ekki viljað svara spurn­ingum um af hverju og á hvaða for­sendum FISK hefur stundað umfangs­mikil við­skipti með og við útgerð­ar­fé­lagið Brim. Fram­kvæmda­stjór­inn heitir Frið­björn Ásbjörns­son og tók hann við starf­inu af Jóni Eðvaldi Frið­riks­syni í nóv­em­ber í fyrra eftir að Jóni Friðrik var sagt upp störfum með skömmum fyr­ir­vara. Jón Eðvald hefur ekki viljað ræða þau starfs­lok við Stundina. 

Eigandi Brims, sem áður hét HB Grandi, er Guð­mundur Krist­jáns­son. FISK-Seafood byrj­aði á því í fyrra að kaupa þriðj­ungs­hlut eig­anda Brims í Vinnslu­stöð­inni í Vest­mann­eyjum og keypti svo hlut líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildis í Brimi í síð­asta mán­uði fyrir rúma fimm millj­arða króna. 

FISK hefur nú selt þennan eign­ar­hlut í Brimi, auk eign­ar­hluta sem FISK átti fyrir, til eign­ar­halds­fé­lags í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son sem heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur. Kaup­verðið er tæp­lega 8 millj­arðar króna.   Þetta kemur fram í flöggun, til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í dag.  

Vef­mið­ill­inn Kjarninn sagði fyrstur fjöl­miðla frá við­skipt­unum í morgun. 

Frið­björn er, líkt og Guð­mundur Krist­jáns­son, ætt­aður frá Snæ­fells­nesii þar sem faðir hans, Ásbjörn Ótt­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur stundað útgerð í fyr­ir­tæk­inu Nesver ehf. á Hell­issandi  um ára­bil. Frið­björn hefur verið fram­kvæmda­stjóri þeirrar útgerðar í gegnum árin, sem og fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­innar Soff­an­í­asar Cecilssonar á Grund­ar­firði en FISK Seafood keypti hana árið 2017. Guð­mundur Krist­jáns­son er einnig ætt­aður frá  Snæ­fells­nesi, nánar til­tekið frá Rifi sem er stein­snar frá Hell­issandi. Þessi mikla sam­vinna FISK og Brims eftir að Frið­björn tók við sem fram­kvæmda­stjóri FISK Seafood vekur meðal ann­ars athygli út af þessu. 

Vinnslustöðin áralangt deiluefni

Með snún­ingnum með Gild­is­hlut­inn hefur eign­ar­hlut­ur­inn farið frá líf­eyr­is­sjóðnum, með stuttri við­komu hjá útgerð­ar­armi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, og til stofn­anda, for­stjóra og stærsta hlut­hafa Brims. Ein af spurn­ing­unum sem vaknar út af þessu er af hverju FISK  Seafood stundar þessi miklu inn­byrðis við­skipti við Guðmund Krist­jáns­son, fyrst í Vinnslu­stöð­inni og svo í Brimi. 

„Sendu mér spurn­ing­arnar við tæki­færi“

Í síð­ustu viku sendi Stundin spurn­ingar til Frið­björns Ásbjörns­sonar, bæði um starfs­lok Jóns Eðvalds og eins vegna við­skipt­anna með hluta­bréf í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem tengj­ast Guðmundi Krist­jáns­syni. Harðar deilur Guð­mundar og meiri­hluta­eig­anda hluta­fjár­ins í Vinnslu­stöð­inni hafa auð­vitað verið opin­berar um ára­bil og voru upp­kaup FISK Seafood örugg­lega meðal ann­ars  lausn á aug­ljósu og tíma­freku vanda­máli fyrir Guðmund. En spurn­ingin er hvað FISK Seafood fær út úr við­skipt­unum í sjálfu sér. 

Sá sem öllu ræðurÞórólfur Gíslason ræður því sem hann vill ráða innan Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og er ljóst að allar meiri­háttar ákvarð­anir innan FISK Seafood eru teknar af honum eða stað­festar af honum á end­anum.

Svarar ekki spurningunni af hverju

Frið­björn tók fyrst vel í erindið og bað um spurn­ing­arnar yrðu sendar. „Sendu mér spurn­ing­arnar við tæki­færi.“

Stundin sendi honum þá meðal ann­ars eft­ir­far­andi spurn­ingar: „Hver var skýr­ingin fyrir upp­sögn Jóns Eðvalds þar á undan? Spyr þig sem fram­kvæmda­stjóra, pró­kúru­hafa og æðsta stjórn­anda FISK.“; „Af hverju hefur FISK ráð­ist í upp­kaup á hluta­bréfum í Vinnslu­stöð­inni og Brimi, HB Granda? Ætlar FISK sér í frek­ari fjár­fest­ingar í öðrum útgerð­ar­fé­lögum á næst­unni?“

Frið­björn svar­aði ekki þessum spurn­ingum. 

Sá sem öllu stýrir sem ger­ist innan Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og dótt­ur­fé­laga þess er Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri og er alveg ljóst að það er hann sem á end­anum hefur tekið ákvarð­an­irnar um við­skiptin við Guðmund Krist­jáns­son. Af hverju Þórólfur hefur valið þessa leið liggur ekki fyrir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár