Óráðsdraumur Of Monsters and Men rætist

Poppaða þjóð­laga­sveitin end­ur­fæð­ist á nýj­ustu plötu sinni Fever Dream. Sveitin lýsir ferða­lag­inu frá Mús­íktil­raunum til heims­frægðar, úr því að vera hrá og krútt­leg yfir í að þróa áfram hug­myndir og vera ber­skjölduð.

Óráðsdraumur Of Monsters and Men rætist

„Til þess að ganga vel í ein­hverju þá þarftu að trúa á það sem þú ert að gera og gera góða hluti, en það þarf líka alls konar annað að ger­ast. Mús­íktil­raunir setti ein­hverja full­komna atburða­rás í gang fyrir okkur.“ Svona lýsir Ragnar Þór­halls­son, annar söngv­ari Of Monsters and Men, lykl­inum að vel­gengni stór­sveit­ar­innar.

Hljóm­sveitin var stofnuð fyrir þessa tón­list­ar­keppni unga fólks­ins og vann árið 2010. Ári síðar gaf sveitin út plöt­una My Head Is an Animal sem seld­ist í rúm­lega milljón ein­tökum í Banda­ríkj­unum. Platan komst í sjötta sæti banda­ríska vin­sælda­list­ans Bill­bo­ard 200, sem var þá besta frammi­staða íslenskrar sveitar; til sam­an­burðar komst plata Bjarkar Volta í níunda sæti árið 2009. Fjórum árum síðar sló sveitin þetta met með annarri plötu sinni, Beneath the Skin, sem komst í þriðja sætið. Þriðja plata sveit­ar­innar, Fever Dream, kom út í júlí síð­ast­liðnum og náði níunda sæti á list­anum.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár