Þverpólitísk samstaða um að þrengja skilyrði til jarðakaupa

Allir þing­menn sem tóku afstöðu til fyr­ir­spurnar Stund­ar­innar sögð­ust styðja að skil­yrði um kaup á jörðum verði þrengd með lögum. „Í sjálfu sér skiptir ekki öllu hvort kap­ít­alist­inn sem safnar jörðum býr á Ríví­er­unni eða í Reykja­vík,“ segir Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé.

Þverpólitísk samstaða um að þrengja skilyrði til jarðakaupa

Allir alþing­is­menn sem tóku afstöðu til fyr­ir­spurnar Stund­ar­innar segj­ast styðja þrengri skil­yrði í lögum varð­andi kaup á jörðum. Mikil umræða hefur verið um sam­þjöppun eign­ar­halds á landi að und­an­förnu, meðal ann­ars vegna upp­kaupa breska auð­kýf­ings­ins James Ratcliffe á jörðum og vatns­rétt­indum á Norð­aust­ur­landi.

Stundin lagði tvær spurn­ingar fyrir alþing­is­menn með tölvu­pósti. Sú fyrri hljóðar svo: „Styður þú að þrengri skil­yrði verði leidd í lög varð­andi kaup á jörðum?“

Allir þeir 22 þing­menn sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar svör­uðu henni ját­andi. Þing­menn­irnir eru úr öllum þeim flokkum sem eiga sæti á Alþingi. Að sögn ráð­herr­anna Katrínar Jak­obs­dóttur, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar er frum­varp nú í vinnslu þar sem skil­yrði fyrir kaupum verða þrengd sam­kvæmt til­lögum starfs­hóps sem skil­aði skýrslu þess efnis síð­asta haust.

Síðari spurn­ingin var: „Telur þú að skil­yrði fyrir jarða­kaupum ættu að vera þrengri fyrir aðila sem hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Auðmenn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár