Sjófuglum mun fækka við Ísland

Hlýnun jarðar hefur áhrif á fugla­stofna við landið.

Sjófuglum mun fækka við Ísland

Sjó­fuglar eru þeir fuglar sem mun fækka mest til árs­ins 2050 sam­kvæmt Erpi Snæ Hansen, doktor í líf­fræði. Ísland og haf­svæðið umhverfis landið eru mik­il­væg útbreiðslu­svæði nokk­urra stærstu sjó­fugla­stofna í Norð­austur-Atl­ants­hafi.

Ástæða þess að þessum teg­undum fer fækk­andi teng­ist fæðu­skil­yrðum í sjó. „Ef hlýn­unin heldur áfram hefur það áhrif á fæð­una. Það er lyk­il­at­riði í spám með sjó­fugla. Þeir eru allir að éta sömu fæð­una, loðnu og sand­síli. Sílið hefur brugð­ist sér­stak­lega illa við þessum hita­breyt­ingum. Aukin úrkoma og skýja­far mun einnig hafa áhrif á fæðu­skil­yrði, mun vinna til við­bótar við hita­stigið,“ segir Erpur.

Þeir sjó­fuglar sem eru í bráð­ustu hættu þegar litið er til lofts­lags­mála eru lundi, stutt­nefja, skúmur, fýll, lang­vía, kría, sjó­svala og topp­skarfur.

Samkvæmt Erpi er lund­inn í mestri hættu en við fram­reiknun á fram­tíð­ar­spá á stofni lund­ans er ein­ungis tíma­spurs­mál hvenær hann hverfur alveg. Spár gera ráð fyrir því að stofn­inum fækki um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár