Hvernig breyti ég mataræðinu til að bjarga jörðinni?

Breyting á mat­ar­venjum er mik­il­vægur þáttur í að berj­ast gegn lofts­lags­neyð. Til að minnka kolefn­is­fótsporið er mik­il­vægt að minnka kjöt­neyslu, sporna gegn mat­ar­sóun og velja eftir bestu getu mat­væli fram­leidd á Íslandi. En hvar eigum við að byrja?

Hvernig breyti ég mataræðinu til að bjarga jörðinni?

Stefán Gíslason umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur telur breyt­ingar á mat­ar­venjum mjög mik­il­vægan þátt í því að berj­ast gegn lofts­lags­neyð en mat­væla­iðn­aður stendur fyrir 14 pró­sent af allri losun á heims­vísu, sem er jafn mikið og allir bílar, trukkar, flug­vélar og skip losa sam­an­lagt.

Stefán Gíslason

Fjórar helstu ástæður los­unar af völdum mat­væla­iðn­aðar eru eft­ir­far­andi:

1. Þegar skógar eru ruddir til að rýma fyrir land­bún­aði losar það gríð­ar­legt magn af kolefnum í and­rúms­loftið sem veldur hlýnun jarðar.

2. Þegar jórt­ur­dýr melta fæð­una sína, ropa og prumpa metangasi út í and­rúms­loftið sem er ein skað­leg­asta gerð gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem fyr­ir­finnst.

3. Mykja og áburður sem notuð eru í land­bún­aði sleppa einnig met­ani í and­rúms­loftið.

4. Flutn­ingur á mat­vælum skilur eftir sig stórt kolefn­is­fót­spor.

Þegar kemur að því að breyta því hvað við borðum telur Stefán þrjá þætti vera mik­il­væg­asta. Það er að minnka …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár