Hin prýdda dökka uppspretta óendanlegrar sköpunar

Vís­inda­menn hafa gert það sem áður var talið óhugs­andi – að ná mynd af risa­svart­holi í rúm­lega 50 milljón ljósára fjar­lægð.

Hin prýdda dökka uppspretta óendanlegrar sköpunar

Pōwehi er alda­gam­alt orð frá Havaí sem merkir „hin prýdda dökka upp­spretta óend­an­legrar sköp­unar“. Það er því ekki furða að havískum háskóla­pró­fessor hafi komið orðið í huga þegar haft var sam­band við hann um nafn á risa­svart­hol. Þökk sé sam­stilltu átaki vís­inda­manna víðs vegar á jörð­inni hefur mann­kynið nú fengið að líta Pōwehi augum.

Svart­holið er í risa­spor­völu­þokunni Messier 87, sem finna má í stjörnu­merk­inu meyj­unni. Að ferð­ast þangað frá jörð­inni tæki um 53 og hálfa milljón ára, að því gefnu að manni auðn­að­ist að ferð­ast á hraða ljóss­ins. Messier 87 er ein stærsta og massamesta vetr­ar­braut í nágrenni við sól­kerfi jarðar og eru stjörn­u­rnar í henni um trilljón tals­ins.

Pōwehi er um 6,6 millj­örðum massam­eira en sólin sem við þekkjum úr sól­kerfi jarðar og þver­mál þess er svipað og bilið á milli hennar og Plútó. Um það bil einn sólmassi fellur inn í svart­holið á hverjum ára­tug …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár