Draum­ur­inn Nönnu hafði lengi dreymt um að fljúga um loftin blá í loft­belg og hana hafði jafn­framt lengi langað að heim­sækja Kappa­dókíu í Tyrk­landi. Draum­ur­inn rætt­ist því tvö­falt í ferða­lag­inu. Mynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Sveif um loftin blá í loftbelg

Skyndi­legt and­lát góðs vinar Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur minnti hana á að einmitt núna – ekki á morgun – væri tími til að láta draumana ræt­ast. Tíu dögum eftir að hún frétti af and­láti hans sveif hún í loft­belg yfir þorp­inu Kappa­dókíu í Tyrk­landi og heiðr­aði þannig minn­ingu vinar síns.

Þ

egar Nanna Rögn­vald­ar­dóttir var sjö ára var henni gefin bók sem varð strax í miklu upp­á­haldi og hún fletti oft og iðu­lega. Í henni var mynd af fyrsta loft­belgnum. Hún heill­að­ist af honum og lét sig dreyma um að svífa um loftin blá í einum slíkum. 

Ekki grun­aði hana þá að hún ætti eftir að láta draum­inn ræt­ast nokkrum ára­tugum síðar. „Þetta var gam­all draumur sem ég hafði í raunar aldrei búist við að ég myndi láta ræt­ast. En svo urðu aðstæður til þess að ég tók skyndi­á­kvörðun. Ég frétti and­lát góðs vinar míns, hans Sigurðar Svav­ars­sonar, sem bar óvænt að. Ég sett­ist við tölv­una og ætl­aði að fara að skrifa systur minni og segja henni frá þessu. Fyrsta setn­ingin sem blasti við mér þar var: Lífið er núna. Þá fór ég að hugsa um allt þetta sem maður lætur ógert í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár