Fjöl­skyldan For­eldr­unum leið­ist ekki að fylgj­ast með fyrstu skrefum Mál­fríðar Jóhönnu en tíkin Lukka er ekki alltaf jafná­nægð með athygl­ina sem sú litla fær. Mynd: Heiða Helgadóttir

Biðu í sjö ár eftir barni

Ef bókin er að deyja hafa þau Þor­gerður Agla Magn­ús­dóttir og Hall­grímur Helgason ákveðið að berj­ast gegn því. Þau ræða hér um ástríð­una, lífið og óska­barnið sem þeim fædd­ist eftir sjö ára til­raunir og að minnsta kosti fimm glasa­frjóvg­anir.

Lítil þörf er fyrir gard­ínur í eld­hús- og stofu­gluggum Þor­gerðar Öglu Magn­ús­dóttur og Hall­gríms Helga­sonar, því stærð­ar­innar chili- og papriku­plöntur byrgja for­vitnum sýn, grípa birt­una sem streymir inn og nýta hana í að vaxa eins og ill­gresi, þrátt fyrir að vel sé komið fram í nóv­em­ber. Hall­grímur stendur við íslenska pönnu­kökupönnu og steikir ommel­ettur með chili og papriku ofan í fjórar konur, blaða­mann Stund­ar­innar, Öglu sam­býl­is­konu sína, Heiðu Helga­dóttur ljós­mynd­ara og síð­ast en ekki síst yngstu dóttur sína, Málfríði Jóhönnu Öglu­dóttur Hall­gríms­dóttur. Sú ber stórt nafn tveggja langamma og beggja for­eldra, enda er hún mik­ill karakter sem stelur þrumunni, með sitt rauð­leita hár og fríða and­lit. Á meðan eggja­kök­urnar malla nýtum við tím­ann í að dást að óska­barn­inu sem er rétt að verða eins árs, þótt hug­myndin um hana sé tals­vert eldri. Það tók hana nefni­lega heil sjö ár að koma í heim­inn, eins og við komum að síðar. Mál­fríður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár