Kastar vina­bombum Sæunn er með­limur í nokkrum hópum aktí­vista og hefur gert það að vana sínum að kasta vina­bombum út til hópanna þegar henni þykir brýn þörf á. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tvö hundruð og fimmtíu nýjar vinkonur á einu bretti

Það getur reynt á að taka þátt í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, sér­stak­lega þegar umræðu­efnið kyndir undir til­finn­ingum sem vekja erf­iðar minn­ingar. Þá getur verið gott að fá í sig vina­bombu af krafti, fulla af kær­leika, stuðn­ingi frá nýjum vin­konum. Því fengu kon­urnar í Facebook-hópnum Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu að kynn­ast á dög­unum.

Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu er Facebook-hópur sem sam­anstendur af konum sem ræða hin ýmsu mál í trún­aði og skipu­leggja aktí­visma gegn „hand­ó­nýtu, ger­enda­vænu kerfi“ eins og segir í lýs­ingu hóps­ins. Ein af virkum með­limum hans er Sæunn Ingi­björg Mar­in­ós­dóttir en hún kastaði á dög­unum vina­bombu inn í hóp­inn, sem var hávær­ari og öfl­ugri en hana óraði fyrir.

„Í þessum hópi eru oft erfið mál til umræðu, því við eigum margar erf­iða reynslu að baki,“ útskýrir Sæunn. „Þegar koma upp opin­berar umræður um eitt­hvað sem ýtir undir erf­iðar til­finn­ingar hjá konum sem hafa verið þolendur ofbeldis getur sprottið upp hjá þeim ákveðin sorg og von­leysi. Það var svo­leiðis tíma­bil um dag­inn, eftir storm­inn sem átti upp­tök sín hjá honum Jóni Steinari vini okkar, þar sem hann beindi athygl­inni frá verð­ugum mál­stað og hópar fólks réð­ust að nafn­greindum konum í kjöl­farið af mik­illi heift. Þá fannst mörgum okkar eins og það væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár