Nátt­sólin fer ekki neitt Þó stelp­urnar í Náttsól hafi í nógu að snú­ast á ýmsum sviðum segj­ast þær ætla að halda Nátt­sól­inni Mynd: Heiða Helgadóttir

Í textunum leynist fullt af slúðri

Tón­list­ar­kon­urnar í hljóm­sveit­inni Náttsól sam­mæl­ast um að tón­listin veiti þeim mikla ham­ingju og og sé þeirra leið til að kúpla sig út úr hvers­deg­inum. Fátt sé til dæmis meira róandi en að setj­ast við hljóð­færi seint um kvöld og gleyma sér.

Það hefur verið vit­laust að gera hjá þeim Elínu Sif Hall­dórs­dóttur, Guðrúnu Ólafs­dóttur og Hrafn­hildi Magneu Ing­ólfs­dóttur í hljóm­sveit­inni Náttsól að und­an­förnu og lukkan hefur verið með þeim í liði. Kvöldið áður en kvik­myndin Lof mér að falla var frum­sýnd, þar sem Elín fer með eitt aðal­hlut­verka, kom í ljós að tek­ist hefði að safna 4000 evrum á Karolina Fund, sem gerir þeim kleift að klára útgáfu á sinni fyrstu breið­skífu. Hvernig leið þeim að bíða eftir því hvort það tæk­ist að fjár­magna plöt­una?

„Við vorum orðnar frekar stress­aðar í síð­ustu vik­unni þar til við fengum póst frá Karolina Fund þegar þrír dagar voru eftir af söfn­un­inni. Þá töldu þau vera góðar líkur á því að söfn­unin hefð­ist. Það var vissu­lega gott að heyra og við fórum algjör­lega á fullt í að deila og tala við vini og vanda­menn. Söfnunin gekk frekar hægt að 50 pró­sent­unum og það var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár