Því einfaldari matur því betra

Mat­reiðsla er hug­leiðsla Reynis Lyngdal sem segir hana hafa orðið ein­fald­ari með árunum, til að koma til móts við mat­ar­smekk fimm ára barns­ins á heim­il­inu. Fersk­leiki og gæði séu hins vegar alltaf aðal­at­riðið.

Því einfaldari matur því betra
Reynir Lyngdal Byrjar alla daga á góðum kaffi­bolla. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er mjög mikið fyrir það að elda, það er mín hug­leiðsla. Ég er alinn upp við að báðir for­eldrar eldi, en pabbi var til jafns við mömmu í eld­hús­inu og hefur mik­inn áhuga á mat. Seinna flutti ég til Spánar til að læra. Þar lærði ég að elda upp á nýtt, því ég lærði að nota fersk­meti. Síðan þá legg ég mikið upp úr því að matur sé eins ferskur og hægt er. Ég sakna þess reyndar hér heima hvað maður finnur lítið fyrir árs­tíð­unum. Sem fátækur námsmáður á Spáni eld­aði maður ósjálfrátt það græn­meti sem var mest af hverju sinni, því það var ódýr­ast. Þegar ég varð uppi­skroppa með hug­myndir spurði ég bara kon­urnar á mat­ar­mörk­uð­unum og fékk nýjar upp­skriftir hjá þeim. Eftir því sem árin líða kemst ég meira á þá skoðun að því ein­fald­ari sem matur er, því betri er hann. Kannski hefur þetta eitt­hvað að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár