Sálarsystur

Innan um ilm­andi birki­trén í litlum kofa í Kjósinni dvelja tvær konur, Ágústa Kolbrún og Sara María Júl­íu­dóttir. Þær er bestu vin­konur og hafa búið saman í um eitt ár, lengst af í bústað uppi í Heiðmörk, þar sem þær þurftu að sækja sér vatn í læk­inn á hverjum degi. Þeim líkar vel við að búa í tengslum við nátt­úr­una og fá mik­inn inn­blástur þaðan í líf sitt. Þær eru nánar vin­konur, nán­ari en gengur og ger­ist, en þær lýsa sam­bandi sínu sem ást­ar­sam­bandi án þess að vera neitt kyn­ferð­is­legt, þær séu sál­ar­fé­lagar á náinn hátt. Hægt er að tengj­ast þeim á Facebook eða gegnum: Forynja á Instagram.

Sálarsystur
Lærðu að elska sjálfa þig „Sjálfs­ástin er eitt­hvað sem maður þarf að æfa sig í því sam­fé­lagið segir manni rosa mikið að skamm­ast sín og fórna sér fyrir aðra. Ef allir myndu setja sjálfa sig í fyrsta sæti þá myndi öllum líða vel. Þá eru allir að taka ábyrgð á sjálfum sér.“
Sálu­fé­lagar„Sam­bandið er þannig að við styðjum hvor aðra í að vera sterkasta útgáfan af okkur sjálfum. Mér líður eins og ég sé aftur lítil stelpa að leika við vin­konu mína nema núna er ég full­orðin og ræð hvað ég geri. Við ætlum að búa saman þangað til við finnum okkur kærasta, en nei það er ekki rétt því við tímum ekki að hætta að búa saman. Sá sem byrjar með okkur verður að fá okkur báðar,“ segir Ágústa
Töfra­drykkurÞær drekka kakó á hverjum degi, ekki bara eitt­hvað kakó heldur 100 pró­sent hreint kakó inn­flutt frá Gvatemala. Þær kalla það töfra­drykk. Ágústa kynnt­ist kakó­inu fyrir rúm­lega þremur árum þegar henni var boðið í kakóserimóníu hjá nágrönnum sínum. Hún fann strax teng­ingu við kakóið og tók Söru með í serimóníu. Sara kol­féll strax fyrir kakó­inu, hún fann strax hvað þetta var öfl­ugt og hversu mikil áhrif þetta …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár