Kristín Mynd: Heiða Helgadóttir

Kannski líður tíminn hægar hjá mér

Nýverið kom út kvæða­safnið Waitress in Fall með nýjum enskum þýð­ingum á úrvali ljóða Krist­ínar Ómars­dóttur. Kristín naut þess að hitta sjálfa sig aftur fyrir á tví­tugs­aldri, þegar fyrstu ljóðin hennar litu dags­ins ljós. Hún seg­ist hins vegar ekki til­búin til að horfa lengi um öxl, enda sé hún alltaf og hafi alltaf verið rétt að byrja að skrifa.

Á dög­unum söfn­uð­ust nokkrir rit­höf­undar saman í Iðnó til að lesa upp eft­ir­læt­is­ljóð sín eftir Kristínu Ómars­dóttur. Tilefnið var útgáfa kvæða­safns Krist­ínar á ensku, Waitress in Fall, í þýð­ingu Val­gerðar Þór­odds­dóttur. Í því er að finna ljóð frá 30 ára ferli Krist­ínar sem ljóð­skálds.

Við Kristín höfum mælt okkur mót í Sundlaug Vest­ur­bæjar klukkan 9.30 á föstu­dags­morgni. Við ætlum að tala um skáld­skap­inn og þær til­finn­ingar sem Krist­ín­ar­kvöldið í Iðnó vakti með höf­und­inum. Fyrst ætlum við að synda saman 500 metrana, eins og hún gerir reglu­lega. Úti helli­rignir eins og við var að búast. Ég mæti nokkrum mín­útum á undan henni og fylgist með henni koma gang­andi hægt í rign­ing­unni, í app­el­sínugulri regnkápu sem hún hefur ekki fyrir að renna upp, klædd svörtum galla­buxum og vað­stíg­vélum. Við heilsumst og höldum í úti­klef­ann. „Það var vin­kona mín, Auður, sem kenndi mér að nota úti­klef­ann og núna fer ég alltaf hingað,“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár