Mynd: Shutterstock

„Ég vil að þetta sé erfitt“

Mamma Mia var ein aðsókn­ar­mesta kvik­myndin í sögu Íslend­inga, fólk dans­aði og söng með mynd­inni og nú er fram­halds­myndin komin, Mamma Mia! Here we go again. Hún fór sömu­leiðis rak­leiðis á topp íslenska aðsók­arlist­ans. Stellan Skars­gård, sem fer með eitt aða­hlut­verkið í mynd­inni, sett­ist niður með blaða­manni í Berlín, ræddi leik­list­ina og Mamma Mia!, #metoo, börnin, sjón­varpið og elda­mennsk­una.

Hann er einn fræg­asti leik­ari Norð­ur­landa og hefur unnið með Lars von Trier að myndum eins og Breaking the Waves, Dancer in the Dark, Melancholia og Nymphomaniac, auk þess að leika hlut­verk í Hollywood-myndum á borð við Good Will Hunting og Pirates of the Caribbean sem og Marvel-myndum á borð við Thor og Avengers.

„Ég lék einn eða tvo rúss­neska skúrka – og gott ef ekki eitt rúss­neskt góð­menni. En svo lauk kalda stríð­inu og þar með lauk eft­ir­spurn eftir rúss­neskum skúrkum. En þeir eru að koma sterkir inn aftur,“ segir Stellan Skars­gård aðspurður um hvort hann hafi lent í því að leika alltaf sama hlut­verkið aftur og aftur. „En ég held ég hafi sloppið við að fest­ast í sömu hlut­verk­unum, ég hef alltaf fundið mér eitt­hvað nýtt fyrir næsta hlut­verk,“ segir hann og þessar þrjár myndir sem við ræðum í dag eru ágætis dæmi um það; fram­hald af …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár