Byssurnar tala í Bandaríkjunum

Jón Atli Árnason er íslenskur læknir sem nú er búsettur í Banda­ríkj­unum, nánar til­tekið í Wisconsin. Eins og fleiri aðkomu­menn þar vestra furðar hann sig á byssu­málum Banda­ríkja­manna. Hann tók sér fyrir hendur að skoða málið.

Byssurnar tala í Bandaríkjunum
Byssu­sali Í sumum ríkjum er ekki beðið um skil­ríki þegar seld eru skot­vopn.

Banda­ríkin eru stór og fjöl­menn og hér býr alls konar fólk. Flestir íbúar eru frið­elsk­andi en hér er líka mikið af glæpa­mönnum og hér er líka mikið ofbeldi. Á hverjum degi deyja 90–100 manns í Banda­ríkj­unum af skotsárum. Um það bil tveir þriðju falla fyrir eigin hendi, tölu­vert er um voða­skot og slys af ýmsu tagi en beinar skotárásir eru margar. Sjö börn og ung­lingar undir 19 ára deyja á hverjum sól­ar­hring af skotsárum. Þá gleym­ist oft að á hverjum degi sær­ast nærri 200 manns og þurfa að glíma við meiri eða minni afleið­ingar skotsára. Fjöldamorð í skólum og öðrum stöðum sem eiga að vera frið­sælir og öruggir vekja heims­at­hygli og kveikja umræður um herta lög­gjöf og eft­ir­lit, en yfir­leitt fjara þær umræður út á nokkrum vikum. Þótt fjöldamorðin veki auð­vitað mesta athygli eru morðin oft­ast eitt til tvö í senn, hér og þar á hverjum degi.

Þetta er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár