Mynd­ar­legur „Margir horfa eflaust á þig og hugsa: Þetta er fal­leg kona!“ full­yrðir blaða­maður. Prodhi játar því en bætir við: „Örugg­lega. En ég er mynd­ar­legur gaur.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er ekki kona“

Prodhi Manisha er pankyn­hneigður trans­maður sem jafn­framt er húman­isti utan trú­fé­lags. Þessi ein­kenni hans voru grund­völlur þess að honum var veitt staða flótta­manns á Íslandi. Hann var skráður karl­maður hjá Útlend­inga­stofnun á meðan hann hafði stöðu hæl­is­leit­anda en það breytt­ist þegar honum var veitt hæli. Nú stendur ekki lengur karl á skil­ríkj­unum hans, heldur kona. Það segir hann segir ólýs­an­lega sárs­auka­fullt eftir alla hans bar­áttu. Hann leitar nú réttar síns.

Prodhi Manesha var skil­greindur kona við fæð­ingu, hann hefur ekki und­ir­geng­ist aðgerð eða horm­óna­með­ferð til þess að breyta því og hyggst ekki gera það. Flestir myndu líka taka undir að hann lítur út fyrir að vera kona, svona smá­gerður, með sítt hár og fín­legt and­lit. Prodhi er samt ekki kona, heldur trans­maður. Það hefur markað allt hans líf. Hann er fæddur í landi þar sem rétt­indi trans­fólks eru fót­um­troðin og hann var ungur að árum þegar hann vissi að hann yrði að flytja þaðan.

Hann vill ekki nefna nafn lands­ins, kallar það ekki heima­land sitt heldur aldrei annað en vega­bréfs-landið – my pas­sport country. „Ég er til­bú­inn til að ræða ástandið í land­inu en ég nefni það ekki á nafn af mörgum ástæðum. Ein af þeim er sú, að ég vil ekki láta tengja mig því. Sumir kynnu að segja að það væri „nógu“ öruggt fyrir mig að búa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trans fólk

Trans manni vísað úr Laugardalslaug fyrir að nota karlaklefa
ÚttektTrans fólk

Trans manni vísað úr Laug­ar­dals­laug fyrir að nota karla­klefa

Starfs­fólk Laug­ar­dals­laugar fór fram á að trans mað­ur­inn Prodhi Manisha not­aði ekki karla­klefa laug­ar­innar, jafn­vel þótt mann­rétt­inda­stefna borg­ar­innar taki skýrt fram að það sé óheim­ilt að mis­muna fólki eftir kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu eða kynein­kennum. Formaður mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs vill leyfa kyn­vit­und að ráða vali á bún­ings­klefum í sund­laugum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár