Aðeins tvær ábendingar um kynferðislega áreitni

Vinnu­eft­ir­litið hefur í 91 skipti krafið atvinnu­rek­endur um úrbætur í tengslum við kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni, ofbeldi og ein­elti á vinnu­stað. Mun færri ábend­ingar hafa borist. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, kallar eftir fjár­magni í mála­flokk­inn.

Aðeins tvær ábendingar um kynferðislega áreitni

Aðeins tvær kvart­anir vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni bár­ust Vinnu­eft­ir­lit­inu á rúm­lega tveggja ára tíma­bili frá því að sér­stök reglu­gerð var sett til að berj­ast gegn áreitni af því tagi. Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­konu Vinstri grænna.

„Það er greini­legt að þetta er í engu sam­ræmi við þann fjölda af sögum sem við höfum verið að heyra í #metoo,” segir Rósa Björk. „Það þarf vissu­lega að upp­fræða um rétt fólks á vinnu­mark­aði, að það geti notað sér þessa leið ef það verður fyrir áreitni. En það þarf að gera meira, sýna fólki að ef það notar þessa leið þá hafi hún alvöru áhrif. Vinnu­eft­ir­litið hefur hvorki mann­afl né fjár­hags­lega burði til að fylgja þessu eftir eða beita ein­hverjum alvöru aðgerðum. Því þarf að breyta og það fljótt.“

Reglu­gerðin tók gildi í nóv­em­ber 2015, en mark­mið hennar er að koma í veg fyrir ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum og bregð­ast við komi fram kvart­anir um slíka hegðun. Samkvæmt reglu­gerð­inni er atvinnu­rek­endum skylt að gera áætlun þar sem komi fram hvernig starfs­menn geti til­kynnt um áreitni og hvernig koma megi í veg fyrir að slík hegðun end­ur­taki sig. Berist Vinnu­eft­ir­lit­inu ábend­ing um að brotið hafi verið á starfs­manni fer stofn­unin í eft­ir­lits­heim­sókn á vinnu­stað­inn. Í slíkum heim­sóknum er starfs­mönnum Vinnu­eft­ir­lits­ins óheim­ilt að segja atvinnu­rek­anda frá því að heim­sóknin sé vegna umkvört­unar.

Kröfðu atvinnurekendur 91 sinni um úrbætur

Í svari ráð­herra kemur fram að 38 kvart­anir vegna ein­eltis á vinnu­stað hafi borist Vinnu­eft­ir­lit­inu á sama tíma­bili og þrjú mál þar sem um meint ofbeldi var að ræða. Engin kvörtun barst um kyn­bundna áreitni á sama tíma­bili, en slíkt er skil­greint sem „hegðun sem teng­ist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk við­kom­andi og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi og skapa aðstæður sem eru ógn­andi, fjand­sam­legar, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi.“

Vinnu­eft­ir­litið hefur í 91 til­viki beint fyr­ir­mælum til atvinnu­rek­enda um að gera úrbætur í þeim mála­flokkum sem reglu­gerðin nær til. Því er ljóst að meiri­hluti slíkra fyr­ir­mæla er ekki til­kom­inn vegna sér­stakra ábend­inga frá starfs­mönnum. Í aðeins eitt skipti hefur ákvörðun Vinnu­eft­ir­lits­ins í slíku máli verið kærð til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu kemur einnig fram að ráð­herra muni bregð­ast við #metoo umræð­unni með því að skipa nefnd til að meta umfang kyn­ferð­is­legrar áreitni, kyn­bund­innar áreitni og ofbeldis, auk ein­eltis á íslenskum vinnu­mark­aði. Nefndin muni rann­saka reynslu þolenda, vitna og ger­enda og skoða til hvaða aðgerða sé gripið á vinnu­stöðum í slíkum málum. Samhliða þeirri vinnu muni starfa aðgerða­hópur sem byggi á nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar og útfæri ein­staka verk­efni nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var semsagt algengt uppnefni á rauðhærðum strákum í þá tíð“
InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
Katrín um stöðu eineltismála á Íslandi: „Hún virðist hafa versnað“
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
Mægðurnar í Hafnarfirði á leiðinni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár