Kristín Dýrfjörð Helstu nið­ur­stöður rann­sóknar Krist­ínar eru að vinnu­dagur á leik­skólum á Íslandi er langur og fjöldi tíma sem hver kenn­ari er í sam­skiptum við börn er með því mesta í OECD-löndum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Kreppa í leikskólum“ í miðjum uppganginum

Rými barna á leik­skólum hefur minnkað um 35 pró­sent frá árinu 1977. Á sama tíma og upp­gangur er í sam­fé­lag­inu er neyð­ar­á­stand á leik­skólum, segir Kristín Dýrfjörð dós­ent, sem hefur rann­sakað íslenska leik­skóla.

„Alltaf þegar það er upp­gangur í sam­fé­lag­inu er kreppa í leik­skólum,“ segir Kristín Dýrfjörð, dós­ent í kenn­ara­deild við Háskól­ann á Akureyri, sem hefur stundað rann­sóknir á íslenskum leik­skólum um ára­bil.

Kristín segir launa­mál aðeins hluta af vanda­máli leik­skól­anna. Fyrst og fremst þurfi að setja fé í leik­skóla­bygg­ingar, bæta vinnu­að­stöðu, auka rými barna og stytta vinnu­viku for­eldra sem eru með börn á leik­skólum. Kristín skorar á sveit­ar­stjórn­ar­fólk að for­gangs­raða í þágu barna og vill að leik­skóla­mál verði á dag­skrá næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. 

Kristín kynnti nýlega nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar á álagi og erf­ið­leikum meðal starfs­fólks leik­skóla. Helstu nið­ur­stöð­urnar eru að leik­skólar á Íslandi eru í nauð­vörn, vinnu­dagur er langur og fjöldi tíma sem hver kenn­ari er í sam­skiptum við börn er með því mesta í OECD-löndum. Leik­skóla­kenn­arar og aðrir í leik­skól­anum upp­lifa erf­ið­leika sem tengj­ast hávaða, of mörgum börnum í of litlu rými, skort á tíma og rými til und­ir­bún­ings í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár