Sár og reiður út í kerfið Andrés Ævar segir að ef sonur hans hefði fengið við­eig­andi aðstoð í upp­hafi skóla­göngu væri ástandið ekki jafn slæmt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Skólakerfið bregst syni mínum

Andrés Ævar Grét­ars­son stendur ráð­þrota gagn­vart hegð­un­ar­vanda sonar síns. Drengnum hefur nú tvisvar verið vísað úr skóla til lengri tíma í kjöl­far alvar­legra atvika, án þess að önnur lausn sé í sjón­máli. „Við erum í raun­inni bara að berj­ast fyrir því að barnið fái að vera í skóla,“ segir hann.

„Ég geri mér full­kom­lega grein fyrir því að þetta er mjög erfitt mál og er alls ekki að halda því fram að hann sé til fyr­ir­myndar. En honum gæti gengið svo mikið betur ef honum væri mætt á miðri leið og hann fengi við­eig­andi stuðn­ing, líkt og skóli án aðgrein­ingar segir til um.“

Þetta segir Andrés Ævar Grét­ars­son, faðir fjórtán ára drengs, sem hefur síð­ustu vikur verið utan­skóla í kjöl­far alvar­legs ofbeld­is­at­viks í skól­anum. Honum hefur einu sinni áður verið vikið úr skóla til lengri tíma vegna slæmrar hegð­unar, en mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur úrskurðað þá brott­vísun ólög­mæta. Dreng­ur­inn er greindur á ein­hverfu­rófi, með ADHD og kvíða­röskun, svo dæmi séu tekin og því ljóst að hann glímir við fjöl­þættan vanda. Andrés telur að ef sonur hans hefði fengið við­eig­andi aðstoð og grein­ingu í upp­hafi skóla­göngu væri ástandið ekki orðið jafn slæmt og raun ber vitni, en hann stendur nú …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár