Loforð og peningar takast á við náttúruvernd á Ströndum

Kanadískt orku­fyr­ir­tæki hefur boðað marg­vís­legar umbætur á lífi fólks á Ströndum, ef það fær að virkja í Hvalá, en seg­ist ekki vilja semja um það fyr­ir­fram. Í skertum innviðum og lágri opin­berri fjár­fest­ingu verða sam­fé­lögin lík­legri til að fórna nátt­úru gegn vil­yrði einka­fyr­ir­tækja um bætta inn­viði.

Loforð og peningar takast á við náttúruvernd á Ströndum
Ófeigs­fjörður Þar sem veg­ur­inn endar. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þær umbætur sem fengið hafa marga íbúa og sveit­ar­stjórn­ar­menn í Árnes­hreppi til að styðja virkjun Hvalár eru ekki samn­ings­bundnar og þurfa margar hverjar ekki að tengj­ast virkj­un­inni.

Gagn­rýnendur virkj­un­ar­innar eru van­trú­aðir á lof­orð tengd virkj­un­inni og orku­fyr­ir­tækið HS Orka, sem stendur að virkj­un­inni, vill ekki gera samn­ing um það fyr­ir­fram. „Það þarf ekki,“ segir Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku.

Íbúar í Árnes­hreppi binda sumir hverjir miklar vænt­ingar við virkj­un­ina. Þeir vona að virkj­un­inni fylgi bættar vega­sam­göngur, þriggja fasa raf­magn og ljós­leið­ara­teng­ing með háhraða inter­neti.  Að auki hefur verið rætt um að HS Orka fjár­magni hita­veitu og svo klæðn­ingu á skóla­húsi grunn­skól­ans.

Bættar vega­sam­göngur eru hins vegar ekki tengdar virkj­un­inni, ef frá er tal­inn vegur úr Tré­kyllis­vík í Ófeigs­fjörð. Þriggja fasa raf­magn er nú þegar í vinnslu á vegum Orkubús Vest­fjarða, og óljóst er hvernig ljós­leið­ara­væð­ing mun eiga sér stað, þótt ljós­leið­ari fær­ist nær með virkjun. 

Enginn samningur

Ásgeir hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár