Mynd: Daníel Starrason

Á engar minningar af lífinu fyrir ofbeldið

Sigríður Ingunn Helga­dóttir var aðeins barn að aldrei þegar hún var beitt kyn­ferð­is­of­beldi og var síðan sagt að gleyma því sem gerð­ist. Ofbeldið mót­aði allt hennar líf og hafði áhrif á sam­skipti hennar við annað fólk, heilsu og jafn­vel upp­eldi barn­anna. Hún fann fyrir létti þegar hún sagði loks­ins frá og segir aldrei of seint að byrja að vinna úr áföllum.

„Af þeim örfáu ger­endum er fá dóm er sumum veitt upp­reist æru, en á meðan fá þolendur að þjást árum og jafn­vel ára­tugum saman, oft án við­eig­andi aðstoðar við að vinna úr áfall­inu,“ segir Sigríður Ingunn Helga­dóttir, en hún var beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi af fjöl­skyldu­vini þegar hún var mjög ung að árum. Hún var komin á fimm­tugs­aldur þegar hún fór að vinna úr áfall­inu sem hún hafði orðið fyrir í barn­æsku, en líf hennar og líðan hefur alla tíð verið litað af ofbeld­inu. 

„Ég geri mér ekki grein fyrir því nákvæm­lega hversu gömul ég var, en ég var alla­vega það ung að ég vissi ekki hvað væri að ger­ast,“ byrjar Sigríður. „Ég á minn­ingu þar sem ég sit úti í sand­kassa að velta fyrir mér orði sem ég heyrði í útvarp­inu og var að velta fyrir mér hvort þetta væri það sem þessi maður væri að gera mér. Eitthvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár