Mynd: Heiða Helgadóttir

Vill að heilbrigðisstarfsfólk læri af reynslu þolenda

Særún Harð­ar­dóttir hefur glímt við alvar­legar lík­am­legar afleið­ingar þess að hafa verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi sem barn. Hún vill að heil­brigð­is­starfs­fólk hlusti á reynslu­sögur þolenda og læri að bera kennsl á ein­kennin, sem oftar en ekki brjót­ast út í lík­am­legum verkjum.

Rúmlega tólf ára gömul byrj­aði Særún að ganga á milli lækna vegna óút­skýrðra krónískra verkja í mag­anum. Hún fór í ótal blóð­rann­sóknir og mynda­tökur, en aldrei fannst nein orsök. Í dag er hún sann­færð um að verkirnir hafi komið til vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­ins sem hún var beitt á barns­aldri. „Auðvitað fannst engin lík­am­leg útskýr­ing, því þetta var áfallið sem var að koma fram í lík­am­anum á mér. Ég varð að loka sárs­auk­ann inni og beindi honum því inn í lík­amann,“ segir hún.

Særún var beitt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi ætt­ingja reglu­lega frá því hún var tólf ára gömul. Ofbeldið stóð yfir í alls fimm ár og var Særún því komin í mennta­skóla þegar því linnti. Strax sem barn byrj­aði hún að finna fyrir lík­am­legum afleið­ingum ofbeld­is­ins. „Þetta fer inn í ómeð­vit­aða kerfið á manni. Flest af því sem ger­ist í svefni er til dæmis ómeð­vitað, en eru við­brögð við því sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár