Steig í ljósið Eftir ára­langar bréfa­skriftir ­vildi Þórdís Elva ljá til­finn­ingum sínum rödd, í orðs­ins fyllstu merk­ingu, og varpa af sér byrð­unum sem hún hafði rang­lega axlað.

Einfaldara ef hann hefði farið í fangelsi

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir útskýrir af hverju hún ákvað að mæta ger­anda sínum og draga ekk­ert undan þegar hún greindi honum frá afleið­ingum gjörða hans.

Á þeim átta árum sem liðin eru frá því að Þórdís Elva Þor­valds­dóttir greindi fyrst frá því opin­ber­lega að henni hefði verið nauðgað hefur umræðan um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gjör­breyst. Fjöl­margir þolendur hafa stigið fram og skilað skömminni. Nú er hins vegar kom­inn tími til þess að færa fók­us­inn yfir á ger­end­urna, þá sem beita ofbeld­inu. Með það að marki steig Þórdís Elva á svið með mann­inum sem nauðg­aði henni og gaf út bók­ina Handan fyr­ir­gefn­ingar.

Hátt í þrjár millj­ónir manna hafa nú horft á Ted-fyr­ir­lest­ur­inn þar sem þau Tom Stranger segja frá leið þeirra í átt að frelsi frá ofbeld­inu, sem hélt þeim báðum í fjötrum, löngu eftir að nauðg­unin var framin. Í dag er Þórdís Elva á góðum stað í sínu bata­ferli og veit að sökin er ekki – og var aldrei – hennar. Bata­ferl­inu verður þó aldrei lokið. „Ekki í þeim skiln­ingi að ég geti látið eins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár