Myrkrið Eitt var að skrif­ast á við Þórdísi, annað var að sjá og heyra hana lýsa aðstæð­unum og sárs­auk­anum sem hann olli henni. Svo erfitt að honum hryllti við sjálfum sér.

Uppgötvaði eigin grimmd

Tom Stranger ræðir um aðdrag­anda og eft­ir­köst þess að hann nauðg­aði. Hann ákvað að láta nauðg­un­ina ekki skil­greina sig, að taka ábyrgð­ina á afleið­ing­unum og vinna úr skömminni sem eitr­aði líf hans.

„Ákvörð­unin um að að tala opin­ber­lega um það sem ég gerði og við­ur­kenna þá stað­reynd að einu sinni framdi ég nauðgun er sprottin af þeirri stað­föstu trú að það geti leitt til góðs. Ég vona að aðrir geti lært af því þegar ég segi mína sögu, af sárs­auk­anum sem þú veldur þegar þú brýtur á öðrum,“ segir Tom Stranger, mað­ur­inn sem nauðg­aði Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur þegar þau voru ung­lingar.

Afleið­ing­arnar sem nauðg­unin hafði á líf hennar voru marg­vís­legar, skað­legar og erf­iðar viður­eignar. Þegar hún fann styrk­inn til þess að mæta ger­anda sínum kom í ljós að þrátt fyrir afneit­un­ina hafði ofbeldið sem hann beitti hana þetta kvöld einnig markað líf hans. Eftir óvenju hrein­skiptið og heið­ar­legt upp­gjör þeirra á milli ákváðu þau að taka höndum saman í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi, með því að deila svið­inu á Ted-fyr­ir­lestri og segja sögu sína í bók­inni Handan fyr­ir­gefn­ingar.

Aðspurður af hverju …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár