Þegar Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í þingkosningunum í næsta mánuði verður ein spurning á kjörseðlinum í Kaliforníu sem gæti haft áhrif langt út fyrir ríkið: Eiga þeir allra auðugustu að greiða sérstakan skatt af eignum sínum?
Samkvæmt tillögunni þyrftu um 200 milljarðamæringar í Kaliforníu að greiða fimm prósent af hreinni eign sinni. Féð yrði að mestu notað til að fjármagna opinbera heilbrigðiskerfið, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skorið niður og um helmingur íbúa Kaliforníu reiðir sig á.
Stuðningsmenn vonast til að tillagan verði fordæmi fyrir aðra landshluta. Reiði vegna vaxandi ójöfnuðar fer vaxandi í Bandaríkjunum á sama tíma og auðæfi tæknimógúla á borð við Elon Musk hafa náð svimandi hæðum.
Loren Fierman, grafískur hönnuður á eftirlaunum sem reiðir sig á Medicare, opinbert heilbrigðistryggingakerfi fyrir fólk á eftirlaunum og fatlað fólk, sagði að greiðslan myndi varla sjást á fjárhag þeirra allra ríkustu.
„Þetta er …





























Athugasemdir