Ástleysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Ástleysið er sárt
Guð­brandur Árni Ísberg hefur sem sál­fræð­ingur unnið með fjölda fólks og líka pörum í gegnum tíð­ina, auk þess að hafa gefið út þrjár bækur sem lýsa upp skiln­ing á til­finn­inga­kerfi mann­eskj­unnar. Mynd: Golli

 Er til til­finn­inga­leg stétta­skipt­ing? 

Sú spurn­ing kviknar við lestur nýju bók­ar­innar hans Guð­brands Árna sem er sjálf­stætt starf­andi, mennt­aður í Árós­ar­há­skóla þar sem hann lauk emb­ætt­is­prófi í sál­fræði árið 1999 en til hans hefur fjöldi fólks leitað í sál­fræði­tíma í gegnum tíð­ina, bæði ein­stak­lingar og pör.

Á manna­máli útskýrir hann í þess­ari bók hvernig reynsla barns af ást og ást­leysi, ekki síst úr frum­bernsku, mótar hug­myndir þess um ást­ina. Hug­myndir sem lesa má úr tengsla­mynstri við­kom­andi, en rann­sóknir síð­ustu ára­tug­ina á eðli tengsla hafa „leitt í ljós að það grunn­mynstur sem barn þróar með sér á fyrstu ævi­ár­unum gengur í end­ur­nýjun líf­daga í þeim nánu sam­skiptum sem ein­kenna ást­ar­sam­bandið“.

Í því sam­bandi segir í bók­inni: „Ef þú ert ham­ingju­söm mann­eskja, og hver óskar sér þess ekki, er það af því að ýmsir í kringum þig hafa komið fram við þig af gæsku og hug­ul­semi, með öðrum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár