Mynd: Shutterstock

Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki

Verkir eru algeng­asta ástæða þess að fólk leitar til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Grund­vall­ar­munur er á hvernig verkir eru með­höndl­aðir eftir gerð. Það eru þó ýmsar bjargir sem fólk hefur hér á landi til að fá með­ferð við verkjum og til sjálfs­hjálpar.

Sigríður Zoëga, sér­fræð­ingur í hjúkrun, dós­ent við hjúkr­unar- og ljós­móð­ur­fræði­deild Háskóla Íslands og deild­ar­stjóri Verkja­mið­stöðvar Land­spít­ala, segir verki oft flókið fyr­ir­bæri en þá má flokka í bráða og lang­vinna.

Sigríður segir lang­vinna verki skerða lífs­gæði fólks veru­lega, hamli félags­legum sam­skiptum og séu algeng orsök örorku og atvinnu­skerð­ingar. Þá eru tölur yfir ein­stak­linga með lang­vinna verki háar á Íslandi og á norð­lægum slóðum. 

Sept­em­ber­mán­uður er til­eink­aður vit­und­ar­vakn­ingu um verki og verkja­stjórnun. 

Stundum er orsökin ekki þekkt 

Hvers vegna mynd­ast verkur eða sárs­auki? „Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því og í sjálfu sér er verkur við­brögð lík­am­ans til að vara okkur við að það sé hugs­an­lega eitt­hvað að. Þannig að þegar við fáum boð frá við­tökum í húð og líf­færum um að eitt­hvað kunni að vera að, þá ber­ast þau til mið­tauga­kerf­is­ins (heila og mænu) þar sem þau eruð flokkuð og túlkuð sem verkir.“ 

Verkir og með­ferðSigríður Zoëga segir …
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár