Rándýrin rata til Finnlands

Hrein­dýra­bændur í Finn­landi lýsa veru­leika sínum við að reka norð­ur­slóða­bú­skap, þegar reglu­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins gerir þeim erfitt fyrir að ná stjórn á rán­dýr­unum sem ráð­ast á dýrin. Þrátt fyrir rík­is­styrki reyn­ist rekst­ur­inn þungur en ferða­þjón­ustan vegur upp á móti.

Rándýrin rata til Finnlands
Juha Kujala Hrein­dýra­hirðir í Lapp­landi.

„Fjöl­skyldan mín hefur verið á svæð­inu í meira en 400 ár,“ segir Juha Kujala, hrein­dýra­hirðir í Lapp­landi. Hann hefur helgað líf sitt því að við­halda alda­gam­alli lífs­af­komu, en hver er reynsla Finna af búskap á norð­ur­slóðum innan Evr­ópu­sam­bands­ins?

Þeir Juha og Ari Maun­uniem lýsa tæki­færum og áskor­unum við að við­halda land­bún­aði á einu nyrsta svæði Evrópu. 

Juha er fimmta kyn­slóð hrein­dýra­hirða og ólst upp við hefðir og venjur hrein­dýra­bú­skapar sem hann lærði áður en hann tók við rekstr­inum af föður sínum. Sjálfur lýsir hann sér sem hrein­dýra­hirði frá blautu barns­beini. 

Hann býr með eig­in­konu sinni, Jenni, og saman ala þau upp fjóra syni. Því von­ast hann til þess að hirð­is­hefð fjöl­skyld­unnar haldi áfram með næstu kyn­slóð. Jenni gegnir einnig mik­il­vægu hlut­verki í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu. „Konan mín er lista­maður. Hún býr til list, teiknar og gerir mál­verk, en býr líka til hand­verk úr hrein­dýra­hornum og gæru.“ 

…

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Í heimi þar sem maðurinn væri ekki til myndi nást náttúrulegt jafnvægi á fjölda rándýra og hreindýra sem virkar þannig að ef rándýrunum fjölgar þá fækkar hreindýrunum og á endanum verða ekki nógu mörg hreindýr fyrir öll rándýrin svo þeim fer að fækka vegna fæðuskorts. Fækkun rándýrana veldur því hinsvegar að hreindýrunum fjölgar aftur og þannig myndast náttúruleg sveifla í fjölda rándýra og hreindýra yfir tíma. Hversu löng sveiflan er eða hversu mikil hún er fer eftir eðli dýranna.
    Þegar maðurinn síðann kemur til skjalana og fer að stjana við hreindýrin þannig að þeim fjölgar ónáttúrulega mikið þá fá rándýrin ónáttúrulega mikið að éta og fjölgar ónáttúrulega mikið og það þarf að leysa með því að lóa eitthvað af rándýrunum. Þau sem setja reglur um verndun rándýra þurfa að átta sig á þessu.

    Sama lögmál gildir um refinn og rjúpuna á Íslandi að stofnstærðirnar sveiflast upp og niður yfir tíma, en með annarskonar sveiflum heldur en fyrir hreindýr og úlfa, enda eðli dýranna ekki það sama.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár