Virkar vel fyrir ríki með veika stjórnsýslu

„Með að­ild að ESB hvarf hætt­an á end­ur­komu her­for­ingja­stjórn­ar,“ seg­ir Jesús Fer­nández-Villa­ver­de, spænsk­ur pró­fess­or í hag­fræði. Spánn hafi hagn­ast mik­ið á að­ild­inni en upp­taka evr­unn­ar hafi engu að síð­ur skap­að áskor­an­ir.

Jesús Fernández-Villaverde er spænskur prófessor í hagfræði við University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Aðspurður um áhrif aðildar Spánar að Evrópusambandinu segir hann: „Spánn fékk aðallega betri stofnanir og skuldbindingu um að forðast sérstaklega slæma efnahagsstefnu.“

Hann er á meðal þekktustu sérfræðinga á sviði þjóðhagfræði, ekki síst á sviði tölulegrar hagfræði og hagfræðilegrar líkanasmíðar, helstu verkfærum seðlabanka og hagstjórna. Hann hefur kennt eða gegnt gestastöðum við marga af virtustu háskólum heims, birt rannsóknir í fremstu fræðiritum hagfræðinnar og hlotið margvíslegar viðurkenningar á sínum ferli. Á meðal rannsóknarefna má nefna hagsveiflur og hagstjórn, peningastefnu og ríkisfjármál og pólitísk hagkerfi. Þó að hann starfi í Bandaríkjunum fylgist hann grannt með stöðu mála á Spáni. 

Að hans mati felst helsti ávinningurinn í aðild að Evrópusambandinu í því að „það hjálpar löndum með lélega stjórnsýslu og slæmar stofnanir að „flytja inn“ betri stofnanir,“ segir Fernández-Villaverde. „Til dæmis: strangari fjárlagareglur, betri reglugerðir fyrir fyrirtæki, opin viðskipti, …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár