„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yf­ir­lækn­ir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eft­ir út­skrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eft­ir þjón­ustu. Heilask­að­ar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyld­ur og nærsam­fé­lag­ið en gef­andi sé að sjá fólk halda aft­ur út í líf­ið eft­ir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
Magdalena Ásgeirsdóttir og Guðrún Bragadóttir Yfirmenn á Grensásdeild segja að í flóknum málum þurfi að hefja samtalið við kerfið á byrjunarreit.

Kerfið er illa viðbúið málum sem snúa að ungu fólki með mænu- eða heilaskaða. Dæmi eru um að ungt fólk sé sent á elliheimili eða bíði lengi inni á heilbrigðisstofnunum þar sem sveitarfélög eru lengi að mæta þjónustuþörf þeirra eftir útskrift.

Magdalena Ásgeirsdóttir, yfirlæknir Grensásdeildar, og Guðrún Bragadóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar, segja að sérstaklega flókin mál lendi á vegg í kerfinu.

„Sveitarfélögin eru alltaf jafn óundirbúin ef eitthvað kemur upp á hjá fólki á vinnubærum aldri,“ segir Magdalena. „Þegar fólk er ungt eru ekki aðrar hugmyndir en að setja það á hjúkrunarheimili. En hvert annars? Sem betur fer eru ekki svo margir ungir í þessum aðstæðum en það eina sem er til í okkar samfélagi eru hjúkrunarheimilin þar sem flestir eru orðnir rígfullorðnir sem betur fer.“

Guðrún og Magdalena segja dæmi vera um að ungt fólk hafi verið hýst á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða eftir slík áföll. „Það er svo mismunandi eftir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
ViðtalLífið á Grensás

Þörf á að styrkja end­ur­hæf­ingu barna veru­lega

Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á milli ráðu­neyta þeg­ar kem­ur að end­ur­hæf­ing­ar­mál­um. Hún seg­ir að dæmi séu um að ungt fólk í end­ur­hæf­ingu hafi ekki feng­ið þá þjón­ustu sem það vildi. Mönn­un­ar­vandi sé ástæða þess að stofn­an­ir dragi sam­an eða loki á sumr­in.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár