Mikið atvinnuleysi í Evrópusambandslöndunum Ítalíu og Spáni er algjörlega heimatilbúinn vandi að sögn prófessors í Evrópurétti við Háskóla Íslands. Maria Elvira Méndes Pinedo er spænsk-íslenskur prófessor hjá Háskóla Íslands og kennir og rannsakar ESB og EES ásamt alþjóðlegum efnahagsrétti. Hún segir stöðu neytenda á Íslandi styrkjast verulega gagnvart efnahagskerfinu gangi Íslendingar inn í ESB. Hún segir áhyggjur Íslendinga af því að þeir hverfi í hítina með fáa þingmenn innan ESB réttmætar. Þar muni reyna á fagmennsku Íslendinga til þess að koma á bandalögum við öfluga samherja við það að verja hagsmuni og sjónarmið íslensku þjóðarinnar. Hún segir það þó óhjákvæmilega styrkja stöðu Íslendinga að eiga sæti við borðið þegar reglur og lög eru sett innan efnahagsbandalagsins.
„En að sjálfsögðu, ef Íslendingar vinna ekki sína heimavinnu fyrir slíkt þing, ef þeir senda fjölskyldumeðlim sem er vanhæfur, er hætt við að þeir nái ekki markmiðum Íslendinga í gegnum Evrópustofnanir,“ áréttar hún.





























Athugasemdir