Móðir Margrétar Höllu Löf Hansdóttur afþakkaði réttargæslumann og var í reglulegum samskiptum við dóttur sína á meðan á rannsókn málsins stóð.
„Mér finnst það alveg galið,“ sagði hálfbróðir Margrétar Höllu sem tjáði sig undir nafnleynd í þættinum Vítahringur Margrétar Löf sem er birtur á RÚV. Verjandi Margrétar segir að geðlæknar hafi ekki fundið út hvað ami að Margréti, en hún sjálf gangist við því að þurfa á einhvers konar aðstoð á að halda.
Margrét misþyrmdi foreldrum sínum í um tíu klukkustundir í apríl á síðasta ári. Faðir hennar, Hans Roland Löf, lést af áverkum sínum og lýsir hálfbróðir Margrétar því að það hafi komið honum í opna skjöldu þegar hann sá hversu illa farinn faðir sinn var eftir árás systur sinnar. Var ákveðið að setja Hans í lífslokameðferð sama dag vegna alvarleika áverkanna.
„Þetta var mikið sjokk …













































Athugasemdir