„Ég bauð Davíð Oddssyni í hádegismat á skrifstofuna þegar ég var borgarstjóri,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og fyrrverandi borgarstjóri, í færslu á Facebook þar sem hann segir frá skemmtilegum hádegisverðarfundi með Davíð, sem lést í gær. Sjálfur hóf Davíð pólitískan feril sinn í borgarmálum og var borgarstjóri í um áratug. Meðal embættisverka var að hefja uppbyggingu á ráðhúsinu við tjörnina, en sjálfur tók hann sæti á Alþingi áður en byggingu lauk.
„Ég var örlítið óviss um hvernig hádegisverðurinn yrði því síðustu samskipti okkar voru eftir kappræður daginn fyrir forsetakosningarnar 2016 og þar var hann frekar ósáttur við rimmu sem við áttum í þættinum. „Davíð gleymir engu,“ hugsaði ég,“ skrifar Einar sem starfaði sem fréttamaður á RÚV áður en hann sneri sér að stjórnmálum.
„Ég ákvað þó að bjóða honum í ráðhúsið því mér þótti áhugavert að ræða við hann um borgarmálin. Hann þáði boðið undir eins enda hafði honum aldrei áður verið boðið á skrifstofu borgarstjóra í ráðhúsinu við Tjörnina sem hann þó hafði forgöngu um að yrði byggt. Hann sagðist frekar vilja fisk en kjöt því hann væri að passa upp á heilsuna. Ég fann að honum þótti vænt um að vera boðið.“
Einar segir fundinn hafa verið skemmtilegan og að Davíð hefði á margan hátt mótað stjórnmál sinnar kynslóðar. Davíð virðist hafa leikið á als oddi á fundinum og viðurkenndi þá óvænt prakkarastrik sem hann greip stundum til á borgarstjóraferlinum. Þannig lýsir Einar samtalinu:
„Davíð fór á kostum í hádegisverðinum, sagði frá hinum og þessum uppákomum í borgarstjóratíð sinni, meðal annars því þegar hann fékk fjarstýringu að gosbrunninum í Tjörninni og notaði hana til að kveikja á honum og bregða fólki sem gekk fram hjá.“
Að endingu vottar Einar fjölskyldu og vinum samúð sína en Davíð lést í gær 78 ára gamall.














































Athugasemdir