Donald Trump Bandaríkjaforseti hvatti í dag Íran til að gera „markverðan“ samning á sama tíma og gríðarleg hernaðaruppbygging Bandaríkjanna á sér stað í Miðausturlöndum samhliða hótunum um aðgerðir.
„Það hefur sannað sig í gegnum árin að það er ekki auðvelt að gera markverðan samning við Íran. Við verðum að gera markverðan samning, annars gerast slæmir hlutir,“ sagði Trump á stofnfundi „Friðarráðsins“, framtaks hans til að tryggja stöðugleika á Gaza.
Hann varaði við því að stjórn hans „gæti þurft að ganga skrefi lengra“ án samkomulags og bætti við: „Þið munuð komast að því á næstu líklega 10 dögum.“
Ummæli Trumps komu skömmu eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sendi Íran sína eigin viðvörun og sagði: „Ef ajatollarnir gera mistök og ráðast á okkur, munu þeir fá svar sem þeir geta ekki einu sinni ímyndað sér.“
Viðræður í bið
Viðvaranirnar voru gefnar út nokkrum dögum eftir að Bandaríkin og Íran héldu aðra umferð viðræðna með milligöngu Óman, að þessu sinni í Genf, þar sem Bandaríkin reyna að koma í veg fyrir að Íran komi sér upp kjarnorkusprengju, sem Íran segist ekki sækjast eftir, og Íran leitar eftir afléttingu bandarískra refsiaðgerða.
Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, varaði við því í gær að það væru „margar ástæður og rök sem hægt væri að færa fyrir árás á Íran“.
„Það væri mjög skynsamlegt af Íran að gera samning við Trump forseta.“
Trump hefur ítrekað hótað hernaðaraðgerðum gegn Íran, fyrst vegna fjöldamorðs á mótmælendum í síðasta mánuði og síðar vegna kjarnorkuáætlunar landsins.
Yfirmaður kjarnorkumála í Íran sagði í dag að „ekkert land geti svipt Íran réttinum“ til kjarnorkuauðgunar.
Fyrri tilraun til samningaviðræðna fór út um þúfur þegar Ísrael gerði óvæntar árásir á Íran í júní síðastliðnum, sem hóf 12 daga stríð þar sem Bandaríkin tóku stuttlega þátt til að sprengja starfsstöðvar írönsku kjarnorkuáætlunarinnar.
Herinn tilbúinn um helgina
Viðbúnaður bandaríska flughersins í Miðausturlöndum er sá mesti frá árinu 2003, þegar Bandaríkin réðust inn í Írak, samkvæmt samantekt Wall Street Journal. Þar segir að Trump hafi enn ekki tekið ákvörðun.
Írönsk stjórnvöld segja að flugmóðurskip Bandaríkjanna sé vissulega öflugt, en enn öflugri séu vopnin sem sendi það á hafsbotn.
CNN og CBS greindu frá því í gær að bandaríski herinn yrði tilbúinn til að hefja árásir á Íran strax um helgina, þótt Trump hafi að sögn ekki tekið endanlega ákvörðun enn.
The Wall Street Journal greindi á sama tíma frá því að Trump hefði verið kynntir hernaðarlegir valkostir hans þar sem „allir voru hannaðir til að valda hámarksskaða“, þar á meðal herferð til að „drepa fjölda íranskra stjórnmála- og herforingja, með það að markmiði að steypa stjórninni af stóli“, sögðu ónefndir bandarískir embættismenn við blaðið.
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, sagði eftir nýjustu viðræðurnar að Teheran hefði samþykkt „leiðbeinandi meginreglur“ með stjórninni í Washington, en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sagði að Íran hefði ekki enn samþykkt ófrávíkjanlegar kröfur Trumpstjórnarinnar.
„Við viljum ekki stríð,“ staðhæfði Masoud Pezeshkian, forseti Írans, í gær, en gaf í skyn að Íranar gæti ekki látið undan kröfum Bandaríkjanna.
Í ljósi vaxandi viðvarana skipaði Pólland í dag öllum ríkisborgurum sínum í Íran að „fara þegar í stað“.
Þýskaland flutti á meðan hermenn frá norðurhluta Íraks og minnkaði viðveru sína í það lágmark sem nauðsynlegt er til að halda herstöð sinni þar starfhæfri, og vísaði til spennu á svæðinu.
Rússland kallaði eftir stillingu og talsmaður Kremlar sagði: „Við erum nú vitni að fordæmalausri stigmögnun spennu á svæðinu, en við vonum samt að stjórnmálalegar og diplómatískar leiðir og samningaviðræður muni áfram ráða för í leitinni að lausn.“
Heræfingar og sýning valds
Íran hefur krafist þess að viðræður við Bandaríkin takmarkist við kjarnorkumálið, þótt Trumpstjórnin hafi áður þrýst á um að eldflaugaáætlun Teheran og stuðningur við vopnaða hópa á svæðinu yrðu á borðinu.
Bandaríkin hafa á meðan verið að byggja upp herafla sinn nálægt Íran, þar á meðal herskip, orrustuþotur og eldsneytisáfyllingarflugvélar, og lagt grunninn að mögulegri langvarandi herferð gegn Íran – ef Trump gefur skipunina.
Stríðsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sent annað flugmóðurskip á svæðið, en það fyrra, USS Abraham Lincoln og nærri 80 flugvélar þess, var staðsett um 700 kílómetra frá írönsku ströndinni á sunnudag, samkvæmt gervihnattamyndum.
Íran hefur reynt að sýna eigið hervald, en íslamska byltingarvarðliðið hélt heræfingar fyrr í vikunni í Hormússundi.
Íranskir stjórnmálamenn hafa ítrekað hótað að loka sundinu, sem er mikilvæg alþjóðleg flutningsleið fyrir olíu og gas.





























Athugasemdir (1)