Fordæmir leyndarhyggju Kópavogsbæjar

Kópa­vogs­bær held­ur því fram að trún­að­ar­upp­lýs­ing­um hafi ver­ið lek­ið til fjöl­miðla. Full­trúi Við­reisn­ar gagn­rýn­ir leynd­ar­hyggju meiri­hluta bæj­ar­stjórn­ar.

Fordæmir leyndarhyggju Kópavogsbæjar
Kársnesskóli Enn er deilt um Kársnesskóla. Mynd: Golli

Bæjarfulltrúi Viðreisnar, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, fordæmir leyndarhyggju í kringum upplýsingagjöf tengdri Kársnesskóla og bókaði þess eðlis á fundi bæjarráðs Kópavogsbæjar í dag.

Meirihlutinn, sem samanstendur af Sjálfstæðisflokki og Framsókn, segir í bókun sinni að gögnum sem voru merkt trúnaði, að ítrekuðum ráðleggingum lögmanns bæjarins, hafi verið lekið í fjölmiðla.

Málið hverfist um kostnað vegna uppbyggingar Kársnesskóla en Heimildin greindi frá því fyrr í janúar að kostnaðurinn vegna þessa væri kominn upp í 7,8 milljarða króna á núvirði sé litið til tímabilsins 2021 og fyrstu sex mánaða 2025. Var vitnað í opið bókhald bæjarins þar sem upplýsingarnar lágu fyrir og gera enn.

RÚV upplýsti í kjölfarið um að kostnaðurinn væri kominn í 8,4 milljarða samkvæmt gögnum sem voru lögð fyrir á fundi bæjarráðs fyrr í mánuðinum og voru trúnaðarmerkt. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, kom þá í viðtal við RÚV vegna málsins. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár