Bæjarfulltrúi Viðreisnar, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, fordæmir leyndarhyggju í kringum upplýsingagjöf tengdri Kársnesskóla og bókaði þess eðlis á fundi bæjarráðs Kópavogsbæjar í dag.
Meirihlutinn, sem samanstendur af Sjálfstæðisflokki og Framsókn, segir í bókun sinni að gögnum sem voru merkt trúnaði, að ítrekuðum ráðleggingum lögmanns bæjarins, hafi verið lekið í fjölmiðla.
Málið hverfist um kostnað vegna uppbyggingar Kársnesskóla en Heimildin greindi frá því fyrr í janúar að kostnaðurinn vegna þessa væri kominn upp í 7,8 milljarða króna á núvirði sé litið til tímabilsins 2021 og fyrstu sex mánaða 2025. Var vitnað í opið bókhald bæjarins þar sem upplýsingarnar lágu fyrir og gera enn.
RÚV upplýsti í kjölfarið um að kostnaðurinn væri kominn í 8,4 milljarða samkvæmt gögnum sem voru lögð fyrir á fundi bæjarráðs fyrr í mánuðinum og voru trúnaðarmerkt. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, kom þá í viðtal við RÚV vegna málsins. …










































Athugasemdir