Svarar Trump: „Veljum Danmörku“

Formaður land­stjórnar Græn­lands hefur afdrátt­ar­laust svarað umleit­unum Banda­ríkja­for­seta um að yfir­taka og inn­lima landið inn í Banda­ríkin.

Svarar Trump: „Veljum Danmörku“
Reglu­legar hót­anir Jens-Frederik Nielsen, for­maður land­stjórnar Græn­lands, og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti, eru hér á sam­settri mynd. Sá síð­ar­nefndi hefur sagst þurfa að taka yfir Grænland gegn vilja Græn­lend­inga. Mynd: AFP / Samsett mynd

For­sæt­is­ráð­herra Græn­lands sagði í dagaað sjálf­stjórn­ar­svæðið myndi frekar kjósa að vera áfram danskt en að verða hluti af Banda­ríkj­unum, í kjöl­far hót­ana Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, um að yfir­taka heim­skauta­eyj­una.

„Við stöndum nú frammi fyrir heim­spóli­tískri kreppu, og ef við þurfum að velja á milli Banda­ríkj­anna og Dan­merkur hér og nú, þá veljum við Danmörku,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, á blaða­manna­fundi í Kaup­manna­höfn ásamt Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur.

Hún við­ur­kenndi að mál­inu væri þar með ekki lokið. „Hins vegar bendir margt til þess að erf­ið­asti hlut­inn sé fram undan,“ sagði Frederik­sen.

Frederik­sen sagði að það hefði ekki verið auð­velt að standa gegn því sem hún kall­aði „algjör­lega óásætt­an­legan þrýst­ing frá okkar nán­asta banda­manni“.

Trump hefur haldið áfram og skerpt á hót­unum sínum um að taka Grænland. „Ég myndi vilja gera samn­ing, þú veist, á auð­veldan hátt. En ef við gerum það ekki á auð­veldan hátt, þá munum við gera það á erf­iðan hátt,“ sagði Trump á fundi í Hvíta hús­inu með stjórn­endum olíu­fyr­ir­tækja.

Hann sagði að hann ætl­aði „að gera eitt­hvað varð­andi Grænland, hvort sem þeim líkar betur eða verr.“

Frederik­sen lagði áherslu á að „auð­vitað viljum við efla sam­vinnu um örygg­is­mál á norð­ur­slóðum við Banda­ríkin, NATO, Evrópu og norð­ur­skauts­ríkin í NATO.“

Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, og Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, eiga að funda með JD Vance vara­for­seta Banda­ríkj­anna og Marco Rubio utan­rík­is­ráð­herra í Hvíta hús­inu á morgun.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    HEIMTUFREKJAN Í SUMU FOLKI ÞAÐ ER GULLIÐ SEM FANST Á GRÆNLANDI SEM SUMIR VILJA KRÆKJA SER Í OG ÞEIR ÞARNA Í AMERÍKUNNI MUNU TÆMA NÁMURNAR ÞNANNIG AÐ EKKERT VERÐUR EFTIR OG TAKA ALLT TIL SÍN OG ÞESSUM HERRUM. ER ALVEG SAMA UM HEIMAMENN Í ÞEIM EFNUM
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár