Hver er Sergio og hvað er hann að selja?

„Lesgoo lesgoo“ kallar Sergio Herrero Medina, ungur íslenskur karl­maður, á áheyr­endur sína. Hann seg­ist geta kennt hverjum sem er að græða hund­ruð þús­unda króna á mán­uði með gervi­greind. Sala og mark­aðs­setn­ing hans á nám­skeiðum bera flest merki vel þekktra sam­fé­lags­miðla­svika, sem breið­ast út um heim­inn eins og eldur í sinu.

Hver er Sergio og hvað er hann að selja?
Ríkidæmi Sergio dregur upp þá mynd af sér að hann sé mold­ríkur og seg­ist geta hjálpað öðrum að verða það líka, gegn greiðslu.

Sergio Herrero Medina er Íslend­ingur sem lofar að kenna þér leiðir til að græða milljón krónur á mán­uði eða meira – ef þú borgar honum hund­ruð þús­unda fyrir nám­skeið. Hörð gagn­rýni hefur komið fram á sam­fé­lags­miðlum á Sergio og starfs­að­ferðir hans, sem bera mörg ein­kenni þekktra svika­mylla. 

Sjálfur seg­ist hann ekki þurfa á pen­ingum að halda, hann græði svo mikið á að selja fyr­ir­tækjum þjón­ustu sem í raun sé fram­kvæmd af gervi­greind. Engin opin­ber gögn styðja þá full­yrð­ingu og seg­ist Sergio ekki geta gefið upp fyrir hverja hann starfar vegna trún­að­ar­á­kvæða í samn­ingum sem hann gerir.

Fjöl­margir hafa lýst yfir efa­semdum um Sergio og lýst honum sem svika­hrappi í umræðu­þráðum á sam­fé­lags­miðlum. Heim­ildin hefur rætt við fjölda fólks sem bæði hefur setið nám­skeið hjá Sergio eða eru aðstand­endur ein­stak­linga sem hafa greitt honum fúlgur fjár fyrir. Tveir þess­ara við­mæl­enda eru á meðal stuðn­ings­manna Sergio og segja að hann …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár