Jane Goodall hefði glöð skotið Pútín og Trump út í geim

Í viðtali sem Netflix birti eftir andlát Jane Goodall sagðist hún vilja senda Donald Trump, Elon Musk, Vladimir Pútín, Xi Jinping og Benjamin Netanyahu út í geiminn. Hún ræddi árásar­girni manna og simpansa, trú á líf eftir dauðann og mikilvægi þess að vernda jörðina.

Ínýju viðtali sem Netflix birti eftir eftir andlát hennar, sagði Jane Goodall, sem lést í síðustu viku 91 árs að aldri, að hún myndi fúslega senda Donald Trump, Elon Musk, Vladimir Pútín, Xi Jinping og Benjamín Netanyahu út af plánetunni með SpaceX-eldflaug.

Myndbrot úr þættinum Famous Last Words hafa síðan orðið gríðar­lega vinsæl og fengið tugmilljónir áhorfa, vakið lof en einnig gagnrýni á hinn goðsagna­kennda frumkvöðul í mannfræði­rannsóknum á öpum – og jafnvel kveikt umræður um það hvort myndefnið væri raun­verulegt eða gervi­greindar­unnið.

Netflix sagði að hún hefði tekið viðtalið upp í mars með þeim skilningi að það yrði ekki birt fyrr en eftir dauða hennar.

„Er eitthvað fólk sem þér líkar ekki við?“ spurði Brad Falchuk, spyrill í viðtalinu, Goodall, sem byrjaði viðtalið á að taka sér sopa af viskíi – eitthvað sem hún gerði gjarnan fyrir viðtöl til að halda röddinni mjúkri.

„Alveg …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár