Ólga í Nepal eftir að ríkisstjórnin setti hömlur á Facebook, YouTube og X

Millj­ónir not­enda segja ákvörð­un­ina skaða við­skipti og skerða tján­ing­ar­frelsi en ákvörð­unin byggir á úrskurði Hæsta­réttar og reglu­gerð frá 2023.

Ólga í Nepal eftir að ríkisstjórnin setti hömlur á Facebook, YouTube og X
Loftmynd af Kathmandu en þar sem ann­ars staðar í Nepal voru settar hömlur á fjölda sam­fé­lags­miðla í dag. Mynd: AFP

Nokkrir sam­fé­lags­miðlar, þar á meðal Facebook, urðu óað­gengi­legir í Nepal í dag eftir að stjórn­völd lok­uðu á óskráða miðla. Það olli millj­ónum not­enda bæði reiði og rugl­ingi.

Fjar­skipta- og upp­lýs­inga­tækni­ráðu­neytið  í Nepal hefur falið fjar­skipta­yf­ir­völdum að loka fyrir 26 miðla sem ekki hafa skráð starf­semi sína í Nepal, þar á meðal Facebook, YouTube, X og LinkedIn.

„Eftir fyr­ir­mælin í gær lok­uðum við fyrir vef­slóð­irnar en það tekur tíma að slökkva á öllu kerf­inu,“ sagði Sudhir Parajuli, for­maður Samtaka net­þjón­ustu­veit­enda í Nepal, í sam­tali við AFP.
„Við erum að ákveða hvaða aðferðir við notum.“

Vinsælir miðlar á borð við Facebook, Instagram og X hafa millj­ónir not­enda í Nepal sem nýta þá til afþrey­ingar, frétta­miðl­unar og við­skipta.

Ríkisstjórnin veitti sjö daga frest

„Mér finnst þessi ákvörðun stjórn­valda mjög slæm. Við rekum fyr­ir­tækið okkar í gegnum Facebook og ef það lok­ast hefur það mikil áhrif á okkur,“ sagði Jenisha Joshi, 25 ára, sem selur skart og fylgi­hluti á Facebook. „Facebook gerir okkur líka kleift að halda sam­bandi við félaga okkar sem búa erlendis. Það ætti ekki að vera bannað.“

Rík­is­stjórnin ákvað í síð­ustu viku að veita fyr­ir­tækj­unum sjö daga frest til að skrá starf­semi sína í Nepal og koma á fót tengiliði, ábyrgð­ar­manni fyrir kvart­anir og sér­stökum reglu­verði með fasta búsetu í land­inu. Ákvörð­unin var tekin í kjöl­far úrskurðar Hæsta­réttar í sept­em­ber í fyrra.

Nepal sam­þykkti árið 2023 reglu­gerð sem kveður á um að sam­fé­lags­miðlar skrái starf­semi sína og hafi stað­bundna við­veru. Óánægja almenn­ings birt­ist einnig á þeim miðlum sem enn voru aðgengi­legir á föstu­dag.

„Þau hafa engan áhuga á því hvaða áhrif þetta hefur á fólkið í land­inu“

Sumana Shrestha, þing­kona stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins Rastriya Swatantra Party, sak­aði stjórn­völd um að reyna að hefta tján­ing­ar­frelsi. „Þau hafa engan áhuga á því hvaða áhrif þetta hefur á fólkið í land­inu,“ sagði hún við AFP.

Beh Lih Yi, svæð­is­stjóri Committee to Protect Journalists, sagði að ákvörð­unin „setti hættu­legt for­dæmi fyrir fjöl­miðla­frelsi“ og hvatti stjórn­völd til að draga hana til baka.

Net­lög­reglan í Nepal hefur varað við óhóf­legri notkun á VPN-teng­ingum, þar sem hún getur stefnt per­sónu­upp­lýs­ingum og öryggi í hættu.

Áður settar hömlur á samfélagsmiðla

Samkvæmt tals­manni ráðu­neyt­is­ins, Gajendra Kumar Thakur, höfðu nokkur fyr­ir­tæki haft sam­band vegna lok­un­ar­innar.

Nepal hefur áður sett hömlur á vin­sæla sam­fé­lags­miðla.
Aðgangi að spjall­for­rit­inu Telegram var lokað í júlí í fyrra, með vísan til auk­inna netsvika og pen­inga­þvættis. Rík­is­stjórnin aflétti hins vegar níu mán­aða banni á TikTok í ágúst í fyrra eftir að Suður-Asíu­deild fyr­ir­tæk­is­ins féllst á að fylgja nepölskum reglum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár