Sprenging í samsæriskenningum á Íslandi eftir Covid

Sam­sær­is­kenn­ingar eru orðnar fyr­ir­ferð­ar­miklar í umræð­unni og mörg dæmi um að stjórn­mála­fólk vopn­væði slíkt í póli­tískum til­gangi. Pró­fess­orar segja sam­særi hafa sprungið út á Íslandi á síð­asta ára­tug.

Sprenging í samsæriskenningum á Íslandi eftir Covid
6. jan­úar Heiminum var brugið þegar þeir sáu óeirð­irnar við þing­hús Banda­ríkj­anna þann 6. jan­úar árið 2021. Í ljós kom að upp­lýs­inga­óreiða og sam­sær­is­kenn­ingar voru helsta elds­neytið í óeirð­unum þar sem nokkrir lét­ust og fjöl­margir end­uðu á bak við lás og slá út af. Mynd: EPA

Sam­sær­is­kenn­ingar eru orðnar mun meira áber­andi í íslensku sam­fé­lagi en áður sam­kvæmt tveimur pró­fess­orum sem hafa fylgst með þróun mála í um ára­tug. Fyrir tíu árum síðan var leitun að sam­sær­is­kenn­ingum á Íslandi, nú hafa þeir ekki undan flóð­inu sem jókst gíf­ur­lega í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins. Samkvæmt könnun fjöl­miðla­nefndar frá því fyrr í júlí kom fram að um 40 pró­sent lands­manna trúa á hið dul­ar­fulla djúp­ríki. Kona sem trúir á efn­ar­ákir á himni (chemtrails) segir mik­il­vægt að geta átt sam­talið og segir engum til gagns að þagga niður óþægi­lega umræðu, Íslend­ingar verði að fá að rök­ræða þetta, þannig séu þeir gerðir.

Almenn­ingi rann kalt vatn milli skinns og hör­unds þegar hann horfði upp á for­dæma­lausar óeirðir þegar múgur og marg­menni braust inn í þing­hús Banda­ríkj­anna þann 6. jan­úar árið 2021. Markmið óeirð­ar­seggja var fyrst og fremst að koma í veg fyrir frið­sam­leg valda­skipti á milli Donalds Trump, frá­far­andi for­seta, og …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
    Og samsæriskenningin um að Bandaríkjamenn sjálfir hefðu skipulagt árásirnar á tvíburaturnana í New York. Fjöldi fólks tók þátt í að dreifa þessari samsæriskenningu.
    -1
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Það er náttúrlega heil útvarpsstöð sem nánast gerir eingöngu út á samsæriskenningar, þ.e. Útvarp Saga, og þessi sprenging í trú á samsæriskenningar er samhliða hlustun á hana.

    Í raun ætti að vera jafn refsivert að ljúga vísvitandi gegn lýðræðinu og samfélaginu þegar auðsannanlegt væri að atvinnumenn vissu betur, og að ljúga um viðskipti fyrirtækja á hlutabréfamarkaði. Lýðræðið.

    Við Íslendingar erum sérlega ónæmir fyrir því að logið sé að okkur. Heilindi stjórnmálanna, þings og ríkisstjórnar er miklu mikilvægara en hlutabréfamarkaða. Samt gerum við strangar kröfur til þeirra sem tjá sig um hlutabréf og fyrirtæki — en engar til þeirra sem tjá sig um grundvallaratriði og þekkingu á undirstöðum lýðræðisins.

    — Augljós vísvitandi ósannindi á sviði þjóðmála ættu að vera refsiverð eins og ósannindi um fyrirtæki og fjármál, sérstaklega af hálfu atvinnumanna, fjölmiðlafólks og stjórnmálamanna — um leið samt og sönnunarbyrði ætti að vera þung og ekki auðvelt að hlaupa alltaf upp á nef sér og kæra.
    1
  • það er viðurkennd staðreynd að yfirvöld í Saudi Arabíu noti skýjamyndunarefni til að búa til ský þegar trúarhátíðir eins og Eid bera upp á heitasta tímanum. Þetta gera þeir til að fólk geti frekar tekið þátt í hátíðarhöldunum og almenningur er vel meðvitaður um það. Ef þetta er gert í Saudi Arabíu, af hverju væri þetta þá ekki möguleiki á öðrum stöðum á jörðinni, sérstaklega heitum stöðum eins og Flórída.
    Höfundur greinarinnar hefði átt að fara betur í loftslagshlýnunarmálin sem sífellt fleiri eru farnir að sjá í gegnum, enda hefur ekkert breyst á þessum 30 árum síðan Al Gore kom fram með heimsendaspá sína. Um aldamótin síðustu var því spáð að yfirborð sjávar myndi stórlega hækka, að minnsta kosti um 2 metra svo mestöll Reykjavík átti að fara undir sjó. Yfirborð sjávar hefur kannski hækkað um 2mm og má þó deila um þær mælingar. Þá hafa menn brugðið á það ráð að segja að líklega muni golfstraumurinn hætta að streyma til Íslands svo það verði óbyggilegt á Íslandi. Kannski er það til að Íslendingar muni flýja land svo "djúpríkið ægilega" geti svo komið og sölsað auðlindunum okkar undir sig.
    Þú gætir líka minnst á "The Trusted News Initiative" eða "Trúverðuga fréttaframtakið" þar sem helstu fréttamiðlar (mainstream media) heimsins bera saman bækur sínar til að detta ekki í þá hræðilegu gryfju að birta kannski óvitandi einhverja "falsfrétt" eða "samsæriskenningu." Þessir miðlar eru í raun svo hræddir að þeir þora ekki að birta neitt nema það sem kemur frá Reuters eða Associated Press, þar sem búið er að móta það með hinni samþykktu orðræðu.
    Þá má nefna Rómarklúbbinn sem hittist árlega til að finna einhverja hörmung sem mun herja á mannkynið því þau telja nauðsynlegt að fækka fólki á jörðinni. Ef það er ekki vatnsskortur er það hungursneyð, nú eða hin ægilega "Global boiling".
    Maður spyr sig: Hverjir eru vitleysingarnir, þeir sem trúa á Global boiling eða þeir sem trúa að hægt sé að búa til ský með efnaspreyi?
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Útbreiddustu samsæriskenningarnar eru sennilega þær að menn geti breytt veðrinu og sólarorka hafi engin áhrif á neitt sem gerist á jörðinni. Hver einasta ákæra um meintan samverknað fleiri en eins sakbornings er líka samsæriskenning þar til sekt viðkomandi er sönnuð.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár